Blaðamaðurinn Ómar Valdimarsson íhugar að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands á næsta ári, þegar yfirstandandi kjörtímabil Ólafs Ragnars Grímssonar rennur sitt skeið. Þetta staðfesti Ómar við Kjarnann í kvöld.
„Það er betra að forsetinn sameini þjóðina frekar en kljúfi hana. Þetta er orðið ágætt af hinu sama, og það er kominn tími til að breyta til. Svolítil auðmýkt er af hinu góða og svo er þetta þægileg innivinna,“ segir Ómar glettinn í samtali við Kjarnann aðspurður um af hverju hann íhugi að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands. Hann ætlar ekki að tjá sig frekar um mögulegt framboð að svo stöddu.
Þá hefur verið stofnuð síða á Facebook þar sem skorað er á Ómar að bjóða sig fram, undir yfirskriftinni „Ómar Valdimarsson á Bessastaði 2016,“ sem 34 hafa lækað til þessa.
Ómar Andersen Valdimarsson hefur um árabil starfað sem blaðamaður, almannatengill og upplýsingafulltrúi Rauða krossins víðsvegar um heiminn. Hann er giftur Dagmar Agnarsdóttur og á með henni fjögur uppkomin börn. Ómar hefur að undanförnu stundað mastersnám í mannfræði við Háskóla Íslands og hyggur á útskrift þaðan fyrir forsetakosningarnar á næsta ári.