OR græddi 7,8 milljarða á álverðstengingu

Miklar álverðshækkanir á síðustu tveimur árum hafa komið sér vel fyrir Orkuveitu Reykjavíkur, þar sem hluti orkunnar sem hún selur er verðlögð í samræmi við heimsmarkaðsverð á áli.

Höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur
Höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur
Auglýsing

Alls hefur verð­mæti lang­tíma­samn­inga Orku­veitu Reykja­víkur (OR) um raf­orku­sölu til álvera auk­ist um tæpa átta millj­arða króna frá árs­byrjun vegna hækk­unar á heims­mark­aðs­verði áls. Þessi virð­is­breyt­ing er aðal­á­stæðan fyrir því að OR skil­aði miklum hagn­aði það sem af er ári. Þetta kemur fram í nýbirtum sam­stæðu­reik­in­ingi OR fyrir fyrstu níu mán­uði árs­ins.

Dótt­ur­fé­lögin skila hagn­aði

Sam­kvæmt upp­gjör­inu var nam rekstr­ar­hagn­aður Orku­veit­unnar á tíma­bil­inu um 10,9 millj­örðum króna

Rúm­lega þriðj­ung­ur­inn af rekstr­ar­hagn­að­in­um, eða um 3,7 millj­arðar króna, kemur frá Veit­um, dótt­ur­fé­lagi OR sem sér um veitu­rekstur hennar í heitu og köldu vatni, dreif­ingu raf­magns og frá­veitu. Orku­sala og fram­leiðsla sam­stæð­unnar skil­aði svo 431 millj­ónum króna í hagn­aði.

Auglýsing

Afkoma af annarri starf­semi sam­stæð­unn­ar, líkt og Ljós­leið­ar­ans, sem sér um rekstur gagna­flutn­ings­kerf­is, og Car­bfix, sem sér um föngun og förgun kolefn­is, var einnig jákvæð, en sam­kvæmt árs­hluta­reikn­ingnum nam hún tæpum tveimur millj­örðum króna á tíma­bil­inu.

Tveir þriðju vegna verð­mæt­ari orku­samn­inga

Stærsti hagn­að­ar­liður OR á fyrstu níu mán­uðum árs­ins var hins vegar virð­is­aukn­ing lang­tíma­samn­inga hennar um raf­orku­sölu, vegna teng­ingar hluta þeirra við álverð sem er nú í hæstu hæð­um.

Þessi virð­is­aukn­ing var bók­færð sem fjár­muna­tekjur að and­virði 7,8 millj­arða króna á tíma­bil­inu. Því má rekja um tvo þriðju­hluta af hagn­aði OR á tíma­bil­inu til þess­arar virð­is­aukn­ing­ar.

Norð­urál borgar tvö­falt meira

OR hefur gert tvo lang­tíma­samn­inga um orku­sölu við Norð­ur­ál, sem rekur álver á Grund­ar­tanga. Í öðrum þeirra samdi Orku­veitan og HS orka um að selja 292 megawött til Norð­ur­áls á tíma­bil­inu 2006 til 2028, en í hinum þeirra var samið um sölu á 47,5 megawött á tíma­bil­inu 2011-2036

Ekki hefur náðst að aflétta trún­að­ar­á­kvæði í fyrri samn­ingn­um, en í þeim seinni fylgir orku­verðið heims­mark­aðs­verði á áli. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem eru til á heima­síðu Norð­ur­áls hefur raf­orku­verðið sem tengt er þessum samn­ingi tvö­fald­ast frá byrjun far­ald­urs­ins, úr 18 Banda­ríkja­dölum á Megawatts­stund í 36.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent