Orri Páll Jóhannsson var í dag valinn af þingflokki Vinstri grænna til að gegna stöðu þingflokksformanns. Orri Páll er nýr þingmaður Vinstri grænna, en var áður varaþingmaður flokksins frá árinu 2016.
Hann var pólitískur aðstoðarmaður Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfis- og auðlindaráðherra á síðasta kjörtímabili og var í 2. sæti á lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður í kosningunum í haust.
Orri Páll tekur við formennsku í þingflokknum af Bjarkey Olsen Gunnarsdóttur, sem verður varaformaður þingflokksins. Hún hefur setið á Alþingi frá árinu 2013.
Á þingflokksfundi Vinstri grænna í dag var Bjarni Jónsson svo valinn ritari þingflokksins. Bjarni var áður varaþingmaður en tók sæti á Alþingi nú í haust. Hann er oddviti flokksins í Norðvesturkjördæmi.