Emil B. Karlsson, fyrrverandi forstöðumaður Rannsóknaseturs verslunarinnar, segir að þó hann sé að sönnu enginn talsmaður erlendra risa-verslunarkeðja eins og Costco og telji nauðsynlegt að veita versluninni fullt aðhald í verðlagi og rekstri, þá sé óskandi að verslunarkeðjan finni áfram grundvöll til rekstrar hér á landi. Það sé bæði til hagsbóta fyrir neytendur, veiti innlendum samkeppnisaðilum aðhald og sýni vonandi öðrum erlendum lágvöruverðskeðjum að það gangi að reka verslun á Íslandi þó markaðurinn sé lítill.
Þetta kemur fram í grein sem Emil skrifar í nýjustu Vísbendingu.
Hann segir að það hafi verið algengt að talað væri um Costco-áhrifin hér fyrir fimm árum þegar erlendi verslunarrisinn kom til landsins með stormsveipi og breytti öllu landslagi á innlendum dagvörumarkaði. Hann skoðar í greininni hver þessi áhrif voru og hvort þau vari enn.
„Vegna smæðar íslenska markaðarins er innlend verslun mjög viðkvæm fyrir erlendri samkeppni. Þannig hafði innkoma Costco á íslenskan dagvörumarkað í maí 2017 þær afleiðingar að vöruverð lækkaði og riðlaðist markaðshlutdeild innlendra smásala og heildsala, en það hafði verið stöðugt síðustu áratugina þar á undan. Gripið var til hagræðingar meðal stærstu innlendu verslananna og leitað var leiða til aukinnar útvíkkunar hjá stærstu dagvöruverslanakeðjunum.
Verð hlutabréfa í Högum, stærstu verslunarkeðjunni, lækkaði og tveimur verslunarfyrirtækjum var lokað, Kosti og verslunum Víðis. Áhrif Costco náðu ekki síður til heildsölumarkaðarins og jafnvel til innlends iðnaðar eins og drykkjarvöruframleiðenda og framleiðenda heimilispappírs. Á meðan nutu neytendur góðs af lægra vöruverði og nýjum vörumerkjum. Enda sýndi könnun stuttu eftir opnun verslunarinnar að um 40 prósent landsmanna hefðu komið og keypt sér aðildarkort og önnur 40 prósent hugsuðu sér að gera hið sama,“ skrifar hann.
Neikvæð umræða og viðhorf til verslana breyttust
Emil segir að reynslan af innkomu Costco sýnir að samkeppni á verslunarmarkaði geti haft veruleg áhrif á verslunarmynstrið á Íslandi. Þegar ein erlend verslun sem opnuð er í Garðabæ hafi viðlíka umrót í för með sér megi draga ályktanir af áhrifum þess að frekari alþjóðleg samkeppni verði á komandi tímum.
Auk þeirra breytinga sem urðu á verðlagi, vöruframboði og samsetninga þeirra verslana sem fyrir voru á markaði varð önnur og ekki síðri breyting, skrifar Emil. Sú neikvæða umræða og viðhorf til verslana breyttust að hans mati. „Um langt árabil var umræða um verslun mest á frekar neikvæðum nótum. Algengt stef var að verslanir okruðu á neytendum í skjóli fákeppni og samþjöppunar. Að einhverju leyti virðist þetta hafa verið á rökum reist. Allavega var borð fyrir báru til verðlækkana með innkomu Costco.“
Hann bendir á að að minnsta kosti þrjár skýrslur höfðu verið samdar fyrir stjórnvöld vegna hinnar háværu umræðu um þessi mál. Öllum hafi verið ætlað að greina orsakir hærra verðlags á matvælum hér á landi en í nágrannalöndunum. Ein skýrslan var samin af Hagfræðistofnun HÍ, önnur af Samkeppnisstofnun og sú þriðja af sérskipaðri nefnd undir forystu hagstofustjóra. Niðurstöður voru í öllum tilvikum samhljóma, samkvæmt Emil. „Helstu ástæður hærra vöruverðs hér en í nágrannalöndunum voru innlend vörugjöld, verndartollar, gengissveiflur, flutningskostnaður, að ekki var hægt að nýta sömu stærðarhagkvæmni í innkaupum og nágrannaþjóðirnar vegna smæðar íslenska markaðarins og að einhverju leyti vegna fákeppni á innlendum dagvörumarkaði.
Nú hafa vörugjöld verið aflögð á matvæli, raftæki og fleiri vörur og verndartollar á landbúnaðarvöru að einhverju marki verið rýmkaðir. En ofurtollar á innfluttar landbúnaðarvörur hafa að sögn verið hindrun í vegi þess að erlendar lágvöruverðsverslanir hafa viljað opna hér verslanir auk smæðar íslenska markaðarins,“
Emil bendir jafnframt á að nú hafi heyrst raddir þess efnis að velta og vinsældir Costco fari minnkandi og gagnrýnt hafi verið að verð á innlendum dagvörum séu í einhverjum tilvikum ekki ódýrari þar en í hinum lágvöruverðsverslununum, sem geti hugsanlega skýrst af því að innlendir heildsalar og framleiðendur bjóði Bónus og Krónunni lægra verð en Costco.
Hægt er að lesa grein Emils í heild sinni með því að gerast áskrifandi að Vísbendingu.