Össur: Kröfuhafar fá fimm sinnum hærri „leiðréttingu“ en húsnæðisskuldarar

15377721873_afaf106597_b.jpg
Auglýsing

„Ef rík­is­stjórnin segir að skattur upp á 862 millj­arða haldi fyrir dóm­stól­um, en er svo reiðu­búin að gefa ríf­lega 400 millj­arða afslátt frá honum þá þarf hún að skýra fyrir þing­inu, þjóð­inni, for­seta Íslands ef því er að skipta – örugg­lega Indefence – hver ávinn­ing­ur­inn er af þeirri eft­ir­gjöf.“ Þetta segir Össur Skarp­héð­ins­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, í stöðu­upp­færslu á Face­book þar sem hann fjallar um frum­vörp rík­is­stjórn­ar­innar um stöð­ug­leika­skatt og mögu­leg sam­komu­lög kröfu­hafa föllnu bank­anna um að greiða stöð­ug­leika­fram­lög í stað hans. Um sé að ræða fimm sinnum hærri „leið­rétt­ingu“ en íslenskir hús­næð­is­skuld­arar fengu sam­kvæmt Leið­rétt­ing­unni, áætlun rík­is­stjórn­ar­innar um lækkun verð­tryggðra hús­næð­is­skulda.

Sam­kvæmt frum­vörpum um stöð­ug­leika­skatt myndi hann færa rík­is­sjóði 862 millj­arða króna en Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur sagt að „hjá­leið­in“ sem felst í að mæta stöð­ug­leika­skil­yrð­unum muni færa honum 450 millj­arða króna.









Kröfu­hafar fá 400 millj­arða afslátt…!Ég tætti mig nokkuð ræki­lega gegnum frum­vörp Sig­mundar Dav­íðs og co. um „stöð...

Posted by Össur Skarp­héð­ins­son on Sunday, June 28, 2015

Auglýsing






Össur segir tvær mögu­legar skýr­ingar á þess­ari eft­ir­gjöf. Önnur sé sú að rík­is­stjórnin hafi samið af sér. Hin sé sú að það sé 400 millj­arða króna virði „að halda frið við kröfu­hafa, sleppa við mögu­leg dóms­mál, eiga kost á meiri erlendum fjár­fest­ingum og taka ekki áhættu með orð­spor Íslands. En varla ætlar Alþingi að afgreiða 400 millj­arða eft­ir­gjöf frá fullum stöð­ug­leika­skatti án þess að á vegum rík­is­stjórnar Sig­mundar Dav­íðs sé lagt fram blákalt mat á því hver ávinn­ingur Íslands er af 400 millj­arða afslætti? Það mat vantar enn­þá.“

Össur segir að lok­um: „Það er svo tragík­ó­mísk íronía af kald­hæðn­ustu sort að það skuli vera undir for­ystu Sig­mundar Dav­íðs sem rík­is­stjórn leggur til að Alþingi gefi kröfu­höfum kost á stærsta skatta­af­slætti í Íslands­sög­unni. Önnur íron­ía, engu minni, er að afslátt­ur­inn til kröfu­hafa er fimm­föld sú upp­hæð sem notuð var til að leið­rétta hús­næð­is­skuld­irn­ar. Undir for­ystu for­manns Fram­sóknar koma kröfu­hafar sem­sagt út með fimm sinnum hærri „leið­rétt­ingu“ en íslenskir hús­næð­is­skuld­ar­ar.

Hver hefði trúað því í síð­ustu kosn­inga­bar­átt­u?“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None