Óttast aukið ofbeldi eftir klofning innan auðugustu glæpasamtaka heims

h_00545188.jpg
Auglýsing

Lög­reglu­yf­ir­völd í Japan ótt­ast öldu ofbeld­is, eftir að þús­undir glæpa­manna sem áður til­heyrðu stærsta glæpa­gengi lands­ins stofn­uðu ný glæpa­sam­tök um liðna helgi. Leið­togi nýju sam­tak­anna er hinn 67 ára gamli Kunio Inoue en hann var áður hátt settur í glæpa­geng­inu Yamag­uchi-gumi.

Ný glæpa­sam­tök, sem kall­ast Kobe Yamag­uchi-gumi og kjósa að not­ast áfram við sama kenni­merki og fyrr, telja um þrjú þús­und með­limi. Það eru mun færri með­limir en í Yamag­uchi-gumi, sam­tök­unum sem glæpa­menn­irnir áður til­heyrðu, þar sem með­limir eru um 23.400 tals­ins, eða tæp­lega helm­ingur allra ein­stak­linga sem til­heyra skipu­lögðum glæpa­sam­tökum í Jap­an. Sam­kvæmt frétt The Guar­dian um málið þá er óhlýðni með­lima gagn­vart Shin­obu Tsukasa, æðsta stjórn­anda Yamag­uchi-gumi, ástæða klofn­ings innan þeirra raða.

Auglýsing


Sam­kvæmt sam­an­tekt For­bes tíma­rits­ins frá síð­asta ári eru Yamag­uchi-Gumi auð­ug­ustu glæpa­sam­tök heims, en auður þeirra var þá metin á um 80 millj­arða doll­ara. Til sam­an­burðar er auður Sina­loa, stærsta fíkni­efna­hrings Mexíkó, metin á um 3 millj­arða doll­ara.



Jap­anska gengið fagnar í ár hund­rað ára afmæli sínu en þau voru stofnuð árið 1915 í borg­inni Kobe, höf­uð­vígi þeirra enn þann dag í dag. Þau hafa að mest ein­blínt á „hefð­bundna“ starf­semi glæpa­gengja á borð við fíkni­efna­smygl, okur­lána­starf­semi og verndun þriðja aðila. Á und­an­förnum árum hafa sam­tökin þó fært út kví­arnar og stundað fjár­glæpi og ann­ars konar hvít­flibba­glæpi.



Jap­anskir fjöl­miðlar hafa fylgst grannt með gangi mála innan glæpa­sam­tak­anna. Lög­reglan ótt­ast að ofbeldi brjót­ist út milli gömlu og nýju sam­tak­anna, sem geti bitnað á almennum borg­ur­um. Svipað var uppi á ten­ingnum árið 1984, þegar upp komu deilur innan sam­tak­anna. Þá lét­ust 25 manns hið minnsta á næstu þremur árum, um 70 slös­uð­ust, þar á meðal nokkrir sem ekki tengd­ust skipu­lagðri glæp­a­starf­semi, og lög­reglan hand­tók hund­ruð glæpa­manna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None