Flugvél frá erlendu flugfélagi lenti með einstakling, sem talinn var smitaður af ebólu, á Keflavíkurflugvelli í dag. Unnið var samkvæmt viðbragðsáætlun vegna ebólu, vegna ótta við að einstklingurinn væri sýktur af ebólu. Þær áhyggjur reyndust hins vegar ekki á stoðum reistar, að því er fram kemur í tilkynningu frá Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra, sem send var fjölmiðlum nú rétt í þessu. Tilkynninguna má sjá hér að neðan.
Klukkan 13:13 barst almannavarnadeild ríkislögreglustjóra tilkynning um að flugvél hefði lent á Keflavíkurflugvelli með veikan einstakling. Grunur lék á að um ebólu smitaðan einstakling hafi verið að ræða. Flugvélinni var lagt á flugverndarsvæði, sem er lokað svæði, á Keflavíkurflugvelli. Íslenskur læknir sem fór um borð í vélina hefur staðfest að ekki er um ebólusmitaðan einstakling að ræða.
Unnið var eftir viðbragðsáætlun vegna ebólu sem verið hefur í vinnslu undanfarið. Sóttvarnalækni var gert viðvart sem og Landspítala og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Samhæfingarstöðinni í Skógarhlíð og aðgerðastjórn í umdæmi lögreglustjórans á Suðurnesjum voru virkjaðar vegna atburðarins.
Flugvélin var frá erlendu flugfélagi og var ekki að koma frá einu að þeim þremur ríkjum þar sem ebóla er útbreidd. Maðurinn reyndis vera að koma frá Suður-Afríku og var ekki með einkenni sem samræmast ebólu.