Ótvíræður meirihluti á Alþingi fyrir frekari virkjunum og breytingum í sjávarútvegi

Formaður Viðreisnar segir að andstaða Vinstri grænna gegn virkjunum og varðstaða Sjálfstæðisflokks um fiskveiðisstjórnunarkefið komi í veg fyrir að sá vilji Alþingis í þeim málum nái fram að ganga. Hún kallar eftir málamiðlun.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.
Auglýsing

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir, for­maður Við­reisn­ar, segir að meiri­hluti sé fyrir því á þingi að ráð­ast ann­ars vegar í frek­ari virkjana­gerð í sam­ræmi við ramma­á­ætlun og að breyta fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­in­u. 

Í ára­móta­grein sinni í Morg­un­blað­inu segir hún að það gangi ekki lengur að ýta öllum ágrein­ings­málum á undan sér vegna tregðu jað­ar­flokka í rík­is­stjórn­inni til að gera mála­miðl­an­ir. Hún leggur því til að annar flokk­ur­inn, Vinstri græn, gefi eftir í and­stöðu sinni gagn­vart virkj­unum gegn því að hinn, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, gefi eftir varð­stöðu sína fyrir óbreytt fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfi. Fyrir báðum mál­unum sé ótví­ræður meiri­hluti á Alþing­i. 

Auglýsing
Þorgerður Katrín segir að til þess að vera for­ystu­ríki í orku­skiptum þurfi Íslend­ingar að flytja og fram­leiða meira raf­magn. „Það þurfum við líka að gera til þess að auka verð­mæta­sköpun í marg­vís­legum hug­verka­iðn­aði sem bygg­ist á orku­notk­un. Þetta vilja all­ir. En það er ágrein­ingur um leið­ir. Það er meiri­hluti á Alþingi fyrir nauð­syn­legum virkj­unum til þess að ná þessu tví­þætta mark­miði. Í sam­ræmi við ramma­á­ætl­un. En til þess að hann geti orðið virkur þarf VG að falla frá stífri and­stöðu við öll ný skref. Ákvarð­anir um þetta þarf að taka á fyrri hluta næsta árs þannig að unnt verði að áfanga­skipta fram­kvæmdum til árs­ins 2030. Mál­þóf milli stjórn­ar­flokk­anna fram yfir mitt kjör­tíma­bil er of dýru verði keypt.“

For­maður Við­reisnar segir að það sé komið Sjálf­stæð­is­flokknum að láta af and­stöðu við allar breyt­ingar á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu í stað­inn fyrir fram­gang í orku­mál­um. „Það er ríf­legur þing­meiri­hluti fyrir tíma­bind­ingu veiði­rétt­ar­ins, eðli­legu gjaldi fyrir einka­rétt og nýjum reglum til þess að auka gegn­sæi, hindra of mikla sam­þjöppun og tryggja dreifð­ari eign­ar­að­ild. Það má líka ætla drjúgan stuðn­ing á þingi við mark­aðs­gjald fyrir veiði­heim­ildir en hátt í 90 pró­sent þjóð­ar­innar styðja þá leið. Ákvarð­anir um þessar mik­il­vægu breyt­ingar er unnt að taka á vor­þing­inu sam­hliða ákvörð­unum um nauð­syn­lega orku­öfl­un. [...] Mála­miðlun af þessu tagi er eina leiðin fyrir nýjan sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra til að kom­ast hjá því að skila sjáv­ar­út­vegs­ráðu­neyt­inu í sömu sporum og hún tók við því.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent