Óverðtryggð lán sækja í sig veðrið

Samhliða lækkun vaxta og aukinni verðbólgu hafa óverðtryggð lán orðið vinsælli á meðal heimila. Hlutfall þeirra af heildarlánum hefur aukist úr 4 prósentum í 56 prósent á ellefu árum.

Óverðtryggð lán eru nú vinsælli en verðtryggð lán.
Óverðtryggð lán eru nú vinsælli en verðtryggð lán.
Auglýsing

Allt frá því í októ­ber í fyrra hefur meiri­hluti útlána til heim­ila frá bönkum og líf­eyr­is­sjóðum hér­lendis verið óverð­tryggð­ur, en hlut­deild þeirra hefur hækkað tölu­vert á síð­ustu mán­uð­um. Sam­kvæmt hús­næð­is- og mann­virkja­stofnun (HMS) hefur aukin hlut­deild banka í útlán­um, ásamt upp­greiðslum á verð­tryggðum útlánum líf­eyr­is­sjóða, leitt þessa hækk­un.

Eft­ir­spurn eftir óverð­tryggðum lánum jókst á árunum eftir fjár­málakrepp­una, á meðan vextir þeirra voru nokkuð lægri en vextir verð­tryggðra lána, að við­bættri verð­bólgu. Frá jan­úar 2010 til lok árs 2013 fór hlut­fall óverð­tryggðra lána úr fjórum pró­sentum upp í 27 pró­sent, en á sama tíma voru lána­kjör þeira nokkuð betri en vaxta verð­tryggðra lána, að við­bættri verð­bólgu.

Mynd: Kjarninn. Heimild: Seðlabankinn og Hagstofa.

Frá seinni hluta árs­ins 2013 til byrjun árs 2019 hélst svo hlut­fall óverð­tryggðra lána til­tölu­lega stöðugt í 27 til 31 pró­sent, þ.e.a.s. fjórða til þriðja hvert lán var óverð­tryggt. Á þessu tíma­bili var minni munur á almennum vöxtum óverð­tryggðra lána og vöxtum verð­tryggðra lána plús verð­bólgu, líkt og sjá má á mynd hér að ofan, en lengst af voru vextir á óverð­tryggðum lánum hærri.

Vaxta­lækk­anir og verð­bólga

Í kjöl­far vaxta­lækk­ana Seðla­bank­ans, sem hófust árið 2019, fóru almennir vextir á báðum teg­undum lána að lækka. Hins vegar versnuðu lána­kjör verð­tryggðra lána eftir því sem verð­bólgan tók að aukast á síð­asta ári, á meðan vextir á óverð­tryggðum lánum héld­ust lág­ir.

Auglýsing

Því hafa fleiri tekið óverð­tryggð lán heldur en verð­tryggð á síð­ustu árum, líkt og sjá má á mynd hér að neð­an. Frá miðju ári 2019 til jan­ú­ar­mán­aðar á þessu ári hefur hlut­deild óverð­tryggðra lána á meðal banka hækkað úr 33 pró­sentum upp í 55 pró­sent.

Mynd: Kjarninn. Heimild: Seðlabankinn

Meiri lán hjá bönk­unum

Í nýj­ustu mán­að­ar­skýrslu HMS er vikið að þess­ari þró­un, en sam­kvæmt stofn­un­inni er ekki að undra að hlut­fallið hafi hækkað svona mikið á síð­ustu mán­uð­um. Bank­arnir hafi verið umsvifa­mestir á lána­mark­aði síð­asta árið, á meðan mikið hafi verið um upp­greiðslur hjá líf­eyr­is­sjóðum og Íbúða­lána­sjóði. Kjör bank­anna á óverð­tryggðum lánum hafi verið mun hag­stæð­ari og því hafi lán­tak­endur í auknum mæli leitað til þeirra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent