Pæling dagsins: Er í lagi að skattgreiðendur borgi fyrir spunann?

15270158622_be8a872753_z.jpg
Auglýsing

Eins og Kjarn­inn greindi fyrstur frá á dög­un­um, greiddi inn­an­rík­is­ráðu­neytið rágjaf­ar­fyr­ir­tæk­inu Argus tæpar 2,4 millj­ónir króna fyrir fjöl­miðla­ráð­gjöf vegna Leka­máls­ins svo­kall­aða á síð­asta ári. Þá greiddi ráðu­neytið lög­manns­stof­unni LEX tæpa milljón króna fyrir lög­fræði­ráð­gjöf í tengslum við sama mál.

Þá greindi Kjarn­inn sömu­leiðis frá því að emb­ætti lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafi greitt almanna­tengsla­fyr­ir­tæk­inu KOM hátt í 900 þús­und krónur vegna sam­an­tektar um bús­á­halda­bylt­ing­una og vegna Leka­máls­ins. Í frétt RÚV í gær­kvöldi kom fram að beinn kostn­aður emb­ætt­is­ins vegna Leka­máls­ins hafi verið um 700 þús­und krón­ur, og restin hafi verið vegna ráð­gjafar um hvernig skyldi bregð­ast við fjöl­miðlaum­fjöllun vegna sam­an­tektar Geirs Jóns Þór­is­son­ar, fyrr­ver­andi yfir­lög­reglu­þjóns, vegna mót­mæl­anna á Aust­ur­velli.

Í sömu frétt RÚV kom jafn­fram­t fram að atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið hafi varið tæpum tveimur millj­ónum króna í ráð­gjöf vegna kynn­ing­ar­mála á kvóta­frum­varp­inu og nátt­úrupass­an­um.

Auglýsing

Pæl­ing Kjarn­ans er þessi: Er það rétt­læt­an­legt að kjörnir full­trú­ar, það er ráð­herr­ar, geti varið skattfé til að hafa áhrif á álit almenn­ings á jafn umdeildum málum og raun ber vitn­i? Er eðli­legt að skatt­greið­endur standi straum af kostn­aði við að afla umdeildum málum ein­stakra ráð­herra fylg­is? Svo ekki sé talað um saka­mál á borð við Leka­mál­ið. Svo má spyrja hvort það sé hluti af starfs­lýs­ingu emb­ætt­is­manns á borð við lög­reglu­stjóra að verja almannafé til að verj­ast rétt­mætri gagn­rýni fjöl­miðla á emb­ætt­is­færslur hans? Og það í máli þar sem Per­sónu­vernd mat sem svo að lög hafi verið brot­in.

Pæl­ing dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarn­ans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum frétt­um. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Frétta­póstur Kjarn­ans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None