Pæling dagsins: Þarf Sigmundur ekki að biðja fólk afsökunar?

9951275365_06d0a92bd6_z.jpg
Auglýsing

Pæl­ing dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarn­ans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum frétt­um. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Víglundur Þor­steins­son setti íslenskt sam­fé­lag á hlið­ina á dög­unum þegar hann reið inn á völl­inn vopn­aður „nýj­um“ gögnum sem hann sagði sanna að stjórn­mála­menn, emb­ætt­is­menn ráðu­neyta og Fjár­mála­eft­ir­litið hefðu framið marg­vís­leg og stór­felld lög­brot við end­ur­reisn föllnu bank­anna í kjöl­far efna­hags­hruns­ins. Víglundur full­yrti meðal ann­ars að íslensk stjórn­völd hefðu snuprað almenn­ing í land­inu um hátt í þrjú hund­ruð millj­arða króna með því að afhenda þrota­búum föllnu bank­anna eignir þeirra á hrakvirði.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra var spurður út í ásak­anir Víg­lundar í útvarps­þætt­inum Bít­inu á Bylgj­unni nokkrum klukku­stundum eftir að Víglundur hafði sent frá sér gögn­in, sama morgun og ­um­boðs­maður Alþingis kynnti nið­ur­stöður frum­kvæð­is­at­hug­unar á sam­skiptum Hönnu Birnu Krist­jáns­dótt­ur, þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, og Stef­áns Eiríks­son­ar, þáver­andi lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, í tengslum við rann­sókn lög­reglu á leka­mál­inu svo­kall­aða, í beinni sjón­varps­út­send­ingu af fundi stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar Alþing­is.

Auglýsing

Sig­mundur tók undir ásak­anir Víg­lund­ar, sagði þær grafal­var­legar og að mik­il­vægt væri að málið yrði rann­sak­að. Ef til vill voru við­brögð for­sæt­is­ráð­herra eilítið mis­ráð­in, því með því að taka undir mál­stað Víg­lundar gaf hann ásök­unum á hendur fjölda emb­ætt­is­manna og starfs­manna ráðu­neyta og rík­is­stofn­anna, um óheil­indi í starfi og bein­línis lög­brot, byr undir báða vængi.

Í nýrri skýrslu Brynjars Níels­son­ar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem hann kynnti stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis í dag, er full­yrð­ingum Víg­lundar vísað á bug. Í raun og veru er nið­ur­staða skýrsl­unnar að ekki standi steinn yfir steini í mál­flutn­ingi Víg­lund­ar. Pæl­ing Kjarn­ans er því þessi: Þarf ekki Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra að útskýra mál­flutn­ing sinn úr Bít­inu morg­un­inn eftir að Víglundur sendi gögn­in? Eiga stjórn­mála- og emb­ætt­is­menn­irnir sem ásak­aðir voru um lög­brot ekki rétt á því? Þar Sig­mundur Davíð kannski að biðja fjölda fólks afsök­un­ar?

Frétta­póstur Kjarn­ans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None