Páll Jóhann Pálsson, þingmaður Framsóknarflokksins, hyggst ekki greiða atkvæði um frumvarp sjávarútvegsráðherra um kvótasetningu á makríl vegna tengsla sinna við útgerðarfélagið Vísi í Grindavík, þar sem eiginkona hans er meðal hluthafa.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Páli Jóhanni, sem hann sendi frá sér nú rétt í þessu.
Tilkynningin fer hér eftir í heild sinni.
„Vegna umræðu um fyrirhugaða kvótasetningu á makríl vil ég koma eftirfarandi á framfæri:
Á næstu vikum verða atkvæði greidd á Alþingi um frumvarp sjávarútvegsráðherra um kvótasetningu á makríl. Vegna tengsla minna við fyrirtæki í sjávarútvegi mun ég sitja hjá við afgreiðslu málsins, líkt og ég hef gert við afgreiðslu annarra mála af sama toga.
Í störfum mínum á Alþingi hef ég ekki dregið fjöður yfir þá staðreynd, að tengsl mín við sjávarútveginn eru töluverð. Ég hef verið til sjós, starfað við sjávarútveg í landi og á 5% hlut í útgerðarfélaginu Vísi hf., eins og fram kemur í hagsmunaskráningu á vef Alþingis. Því til viðbótar er eiginkona mín eigandi og framkvæmdastjóri smábátaútgerðarinnar Marvers ehf. Þau tengsl eru ekki tilgreind í hagsmunaskráningu, enda er í henni ekki gert ráð fyrir skráningu á eigum maka þingmanna né gefinn möguleiki á að bæta við auka athugasemdum í þeirri skráningu.
Vegna ofangreindra tengsla hef ég ekki greitt atkvæði í atkvæðagreiðslum þingsins um kvótamál, veiðileyfa- eða veiðigjaldamál. Hins vegar hef ég áskilið mér rétt til að taka þátt í umræðu um þessa grundvallaratvinnugrein þjóðarinnar, enda er mikilvægt að sjónarmið þeirra sem þekkja vel til greinarinnar heyrist.
Það er mikilvægt að á Alþingi komi fram ólík sjónarmið um mikilvæg mál, enda vilja allir þingmenn vinna þjóðinni gagn. Sjálfur hef ég lýst yfir efasemdum um ágæti þess að hlutdeildarsetja handfæraveiðar smábáta á makríl (sjá t.d. hér). Sú skoðun mín breytir ekki þeirri staðreynd, að ég mun sitja hjá þegar atkvæði verða greidd um málið.“
Virðingarfyllst,
Páll Jóhann Pálsson
alþingismaður