Pawel Bartoszek pistlahöfundur er hættur að skrifa í Fréttablaðið. Hann tilkynnti þetta á Facebook rétt í þessu. Pawel segist hafa skrifað yfir 230 pistla í Fréttablaðið á þeim rúmu fimm árum sem hann hefur skrifað í blaðið.
Hann segir hafa verið ótrúlega mikla upphefð. „Á 12 árum fór ég frá því að skrifa lítilsháttar blogg í eigin nafni og yfir í það hoppa í skarðið fyrir fyrrum forsætisráðherra.
En stundum er gott að taka sér smá frí. Mér fannst ég aðeins vera farinn að endurtaka mig og var hættur að vera spenntur yfir því hvað fólki myndi finnast um það sem ég skrifaði.“
Auglýsing
Fyrr í dag var tilkynnt að Jón Gnarr mun skrifa vikulega pistla í Fréttablaðið á laugardögum, í það pláss sem Pawel hefur skrifað undanfarna mánuði.