Píratar skiluðu gildum ársreikningi of seint til Ríkisendurskoðunar

Píratar skiluðu ársreikningi of seint til Ríkisendurskoðunar Allir flokkar sem eiga fulltrúa á þingi nema einn hafa skilað inn gildum ársreikningum til Ríkisendurskoðunar, en frestur til þess rann út fyrir rúmum einum og hálfum mánuði.

Halldóra Mogensen og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmenn Pírata.
Halldóra Mogensen og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmenn Pírata.
Auglýsing

Sjö stjórn­mála­flokkar sem sæti eiga á Alþingi skil­uðu árit­uðum árs­reikn­ingi sínum til Rík­is­end­ur­skoð­unar áður en lög­bund­inn frestur til þess rann út 1. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. 

Sá eini sem skil­aði ekki á réttum tíma voru Pírat­ar, en árs­reikn­ingur þeirra barst ekki fyrr en 23. nóv­em­ber. Í svari Skúla Egg­erts Þórð­ar­sonar rík­is­end­ur­skoð­anda við fyr­ir­spurn Kjarn­ans segir að athuga­semdir hafa verið gerðar af Rík­is­end­ur­skoð­un  við reikn­ing­inn og að hlut­að­eig­andi stjórn­mála­sam­tök, sem eru Pírat­ar, hafi fengið frest til að bæta úr ann­mörk­un­um. „Að því loknu að því skil­yrði upp­fylltu að bætt hafi verið að fullu úr ann­mörkum verða upp­lýs­ing­arnar birtar á vef Rík­is­end­ur­skoð­un­ar.“

Reikn­ingar allra ann­arra stjórn­mála­flokka sem eiga full­trúa á þingi hafa verið birtir á heima­síðu Rík­is­end­ur­skoð­un­ar. Kjarn­inn hefur þegar birt umfjöllun um þá alla.

Auglýsing
Píratar fóru líka yfir lög­bund­inn frest til að skila inn réttum árs­reikn­ingi í fyrra, en reikn­ingur flokks­ins var þá ekki birtur á heima­síðu Rík­is­end­ur­skoð­unar fyrr en 11. des­em­ber. Þá barst reikn­ingur Flokks fólks­ins líka seint, en honum var skilað á réttum tíma í ár. 

Eyddu nán­ast öllu í rekstur

Á árinu 2019 högn­uð­ust Píratar um 2,6 millj­­ónir króna. Tekjur flokks­ins, sem eru nær ein­vörð­ungu úr opin­berum sjóð­um, voru 86 millj­­ónir króna. Mest mun­aði um fram­lög úr rík­­is­­sjóði til flokks­ins sem námu tæpum 83 millj­­ónum króna. 

Rekstr­­ar­­kostn­aður Pírata var 82 millj­­ónir króna. Þar af kost­aði rekstur aðal­­­skrif­­stofu 65 millj­­ónir króna og rekstur þing­­flokks Pírata 15,1 milljón króna. Það þýðir að 95,5 pró­­sent af tekjum Pírata fór í rekstr­­ar­­kostnað á síð­­asta ári.

Flokk­ur­inn skar sig úr í stjórn­mála­flokka­flór­unni með því að eyða svona stórum hluta tekna sinna í rekst­ur. Hinir lögðu flestir tugi millj­óna króna til hliðar á árinu 2019. Sömu sögu er að segja um síð­asta ár, og kosn­inga­sjóðir þeirra fyrir þing­kosn­ing­arnar sem fóru fram í sept­em­ber því digr­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent