Héraðssaksóknari ræðst í húsleit hjá Eimskip vegna skipanna sem enduðu í Indlandi

Héraðssaksóknara hefur verið veitt heimild til húsleitar á starfsstöðvum Eimskips á grundvelli úrskurðar héraðsdóms. Húsleitin tengist rannsókn á meintum brotum á lögum sem tengjast sölu tveggja flutningaskipa í brotajárn til Indlands.

Sala tveggja flutningaskipa í brotajárn til Alang í Indlandi er ástæða þess að héraðssaksóknari hefur fengið húsleitarheimild hjá Eimskip.
Sala tveggja flutningaskipa í brotajárn til Alang í Indlandi er ástæða þess að héraðssaksóknari hefur fengið húsleitarheimild hjá Eimskip.
Auglýsing

Hér­aðs­sak­sókn­ara hefur verið veitt heim­ild til hús­leitar á starfs­stöðvum Eim­skipa­fé­lags Íslands hf. og Eim­skip Ísland ehf. á grund­velli úrskurðar hér­aðs­dóms. Frá þessu greindi Eim­skip í til­kynn­ingu til Kaup­hall­ar­innar kl. 14 í dag.

Í til­kynn­ingu Eim­skips segir að emb­ættið hafi „óskað eftir afmörk­uðum gögnum vegna sölu skip­anna Goða­foss og Lax­foss á árinu 2019 sem Umhverf­is­stofnun kærði til hér­aðs­sak­sókn­ara 2020“ og að engir ein­stak­lingar hafi rétt­ar­stöðu í mál­inu.

Eim­skip seg­ist í til­kynn­ingu sinni vera að vinna að því að afla þeirra upp­lýs­inga sem hér­aðs­sak­sókn­ari hefur óskað eft­ir. Málið kom upp á yfir­borðið í umfjöllun Kveiks í sept­em­ber í fyrra.

Þá var sagt frá því að Eim­skip hefði selt skipin tvö til fyr­ir­tækis sem heitir GMS, og sér­­­­­hæfir sig í að vera milli­­­­­liður sem kaupir skip til að setja þau í nið­­­­­ur­rif í Asíu þar sem kröfur um aðbúnað starfs­­­­­manna og umhverf­is­á­hrif nið­­­­­ur­rifs­ins eru mun lak­­­­­ari en í Evr­­­­­ópu. 

Þar eru skip oft rifin í flæð­­­­­ar­­­­­mál­inu og ýmis spilli­efni látin flæða út í umhverf­ið. Þá vinna starfs­­­­­menn þar við svo erf­iðar aðstæður að þær hafa verið kall­aðar mann­rétt­inda­brot.

Ein helsta ástæðan fyrir því að skip eru flutt á þessar slóð­ir, í umræddu til­­viki í skipa­­kirkju­­garð í Alang á Ind­landi, er sú að það er greitt fjórum sinnum meira fyrir skip á leið í nið­­ur­rif þar en í Evr­­ópu. Það útskýrist af því að í Evr­­ópu þarf að greiða laun sam­­kvæmt kjara­­samn­ing­um, við­halda öryggi starfs­­manna á vinn­u­­stöðum og mæta lög­­­gjöf frá árinu 2018 sem leggur bann við því að skip yfir 500 brúttó­­­tonnum séu rifin ann­­­ars staðar en í vott­uðum end­­­ur­vinnslu­­­stöðv­­­­­um. 

Allt að 25 millj­óna króna sekt­ar­heim­ild

Umhverf­is­­stofnun kærði meint brot Eim­­skips á lögum um með­­­höndlun úrgangs til hér­­að­sak­­sókn­­ara og fjallað var um það fyrir rösku ári síðan hvernig málið allt rímar ekki við þær áherslur um sam­­fé­lags­­lega ábyrgð í fjár­­­fest­ingum sem stærstu líf­eyr­is­­sjóðir lands­ins, sem margir eru á meðal stærstu eig­enda Eim­skips, hafa und­ir­­geng­ist. 

Auglýsing

„Eins og kom fram í til­kynn­ingum frá félag­inu þann 25.9.2020 og 30.9.2020 þá telur félagið að farið hafi verið eftir lögum og reglum í sölu­ferl­inu á skip­un­um. Eim­skip þykir málið mjög leitt og lítur það alvar­legum augum enda leggur félag­ið, stjórn­endur þess og starfs­fólk mikla áherslu á sam­fé­lags­lega ábyrgð í störfum sínum og hefur lengi hugað að umhverf­is­málum í sinni starf­sem­i,“ segir í til­kynn­ing­unni frá Eim­skip.

Þar segir einnig að félag­inu hafi verið tjáð að til rann­sóknar sé hvort hátt­semi félags­ins „geti varðað við lög númer 55/2003 um með­höndlun úrgangs og reglu­gerða setta á grund­velli þeirra.“

„Fé­lag­inu er ómögu­legt að leggja mat á mögu­leg fjár­hags­leg áhrif en ákvæði lag­anna hafa að geyma heim­ildir til beit­ingu við­ur­laga án þess að vísað sé til sér­stakra fjár­hæða. Eina fjár­hæðin sem lögin gefa vís­bend­ingar um er heim­ild Umhverf­is­stofn­unar til að beita lög­að­ila stjórn­valds­sektum að fjár­hæð allt að 25 millj­ónir króna,“ segir í til­kynn­ingu félags­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent