Píratar vilja banna fyrirtækjum að styrkja flokka og frambjóðendur með beinum hætti

Þingflokkur Pírata telur að fyrirkomulag þar sem fyrirtækjaeigendur geti bæði styrkt flokka beint og í gegnum fyrirtæki sín sé ólíðandi í lýðræðissamfélagi. Það fari þvert gegn markmiði laga um að tryggja gagnsæi, jafnræði og að berjast gegn spillingu.

Björn Leví Gunnarsson er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins.
Björn Leví Gunnarsson er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins.
Auglýsing

Þing­flokkur Pírata hefur lagt fram frum­varp sem felur í sér að lög­að­ilar megi ekki styrkja stjórn­mála­sam­tök eða stjórn­mála­fólk með beinum hætti. Í núgild­andi lögum mega lög­að­ilar gefa 550 þús­und krónur á ári til stjórn­mála­sam­taka og 400 þús­und krónur á ári til ein­stakra fram­bjóð­enda.

Sömu­leiðis vill þing­flokk­ur­inn að allir afslættir lög­að­ila af vörum og þjón­ustu og veittir eru af mark­aðs­verði verði sér­greindir í reikn­ing­um. „Lög­að­ilar sem inna af hendi ein­hvers konar fram­lög til stjórn­mála­sam­taka eða fram­bjóð­enda, í formi afslátta eða hvers konar efn­is­legra gæða, skulu sér­greina heild­ar­fjár­hæð slíkra fram­laga í árs­reikn­ingum sínum og gera Rík­is­end­ur­skoðun sér­stak­lega grein fyrir þeim afslætti. Telja skal saman fram­lög tengdra aðila. Afslættir mega ekki vera umfram það sem öðrum við­skipta­vinum stendur almennt til boða.“

Sem stendur mega stjórn­mála­sam­tök taka við fram­lögum upp á 550 þús­und krónur frá ein­stak­lingum og ein­stakir fram­bjóð­endur mega taka við 400 þús­und króna fram­lögum á ári. Píratar vilja halda þessum krónu­tölum fram­laga frá ein­stak­lingum og gera stjórn­mála­fé­lögum innan sam­stæðu stjórn­mála­sam­taka einnig heim­ilt að taka á móti fram­lögum upp á 100 þús­und krónur frá ein­stak­lingum umfram þessa fjár­hæð. Þá vilja þeir að stofn­fram­lög frá ein­stak­lingum sem veitt eru í beinum tengslum við stofnun stjórn­mála­sam­taka megi að hámarki verða 1,1 milljón króna.

Hætta geti skap­ast á spill­ingu

Í grein­ar­gerð sem fylgir frum­varp­inu segir að núver­andi lög­gjöf stuðli að ójafn­ræði borg­ar­anna þegar komi að styrkjum til stjórn­mála­sam­taka. Til­gangur með hámarks­fjár­hæðum sé sá að eng­inn einn aðili geti í krafti fjár­hags­stöðu sinnar styrkt stjórn­mála­sam­tök um það háar fjár­hæðir að hætta skap­ist á spill­ingu. „Hætt er við að stjórn­mála­sam­tök eða stjórn­mála­fólk freist­ist til að gæta frekar hags­muna styrkt­ar­að­ila umfram hags­muni almenn­ings þegar svo stendur á. Því er mik­il­vægt að borg­ar­arnir njóti jafn­ræðis þegar kemur að styrk­veit­ing­um.“

Auglýsing
Þeir ein­stak­lingar sem eigi fyr­ir­tæki geti sem stendur ekki aðeins styrkt stjórn­mála­sam­tök per­sónu­lega heldur einnig í krafti fyr­ir­tækja sinna. „Þetta fyr­ir­komu­lag er ólíð­andi í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi og fer í raun þvert á mark­mið lag­anna um að tryggja gagn­sæi, jafn­ræði og að berj­ast gegn spill­ingu. Því er lagt til í frum­varpi þessu að fella brott heim­ild lög­að­ila til að styrkja stjórn­mála­sam­tök og stjórn­mála­fólk með beinum hætt­i.“

Í grein­ar­gerð­inni er einnig bent á að fyr­ir­tæki geti styrkt stjórn­mála­sam­tök óbeint. „Það er ekki óal­gengt að fyr­ir­tæki gefi jafn­vel þjón­ustu sína eða veiti meiri afslátt en gengur og ger­ist gagn­vart öðrum við­skipta­vin­um. Því er nauð­syn­legt að það sé greint frá því á gagn­sæjan hátt til þess að aðrir við­skipta­vinir geti notið sömu kjara.“

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fær hæstu styrk­ina frá lög­að­ilum

Verði frum­varpið sam­þykkt myndi það bitna mest á Sjálf­stæð­is­flokkn­um, sem fékk alls 16,7 millj­ónir króna í fjár­fram­lög frá lög­að­ilum á árinu 2020, sem er síð­asti birti árs­reikn­ingum flokks­ins. Á meðal þeirra lög­­að­ila sem greiddu Sjálf­­stæð­is­­flokknum hámarks­­­styrk upp á 550 þús­und krónur á því ári voru sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tæki mest áber­and­i. 

Þau fram­lög voru þó lít­ill hluti af rekstr­ar­tekjum Sjálf­stæð­is­flokks­ins á því ári, þegar þær voru 328,4 millj­ónir króna. Langstærstur hluti tekna þess árs, 195,5 millj­ónir króna, komu úr rík­is­sjóði. Sveit­­ar­­fé­lög greiddu flokknum svo 20 millj­­ónir króna í fram­lög til við­­bótar þannig að alls komu tvær af hverjum þremur krónum sem Sjálf­­stæð­is­­flokk­­ur­inn hafði í tekjur í fyrra úr opin­berum sjóð­u­m. 

Til við­bótar hafði flokk­ur­inn 36,3 millj­ónir króna í tekjur af fjár­fram­lögum og félags­gjöldum ein­stak­linga. 

Eng­inn stjórn­mála­flokkur á Íslandi kemst nálægt því að vera með jafn mikil fjár­hags­leg umsvif og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn. 

Flokkar settir á fjár­lög

Fram­lög til stjórn­­­mála­­flokka úr rík­­is­­sjóði voru hækkuð veru­­lega í byrjun síð­­asta kjör­­tíma­bils. Til­­­­laga sex flokka sem sæti eiga á Alþingi um að hækka fram­lag rík­­­­­­­is­ins til stjórn­­­­­­­­­­­­­mála­­­­­­­flokka á árinu 2018 um 127 pró­­­­­­­sent var sam­­­­­­­þykkt í fjár­­­­­­­lögum sem voru afgreidd áður en þingi var slitið í lok des­em­ber 2017. Fram­lög til stjórn­­­­­­­­­­­­­mála­­­­­­­flokka á því ári áttu að vera 286 millj­­­­­­­ónir króna en urðu 648 millj­­­­­­­ónir króna. Fram­lögin hækk­uðu síðan jafnt og þétt og voru 728,2 millj­ónir króna síð­ustu þrjú ár. 

Til við­­­bótar við þær greiðslur er kostn­aður vegna starfs­­­manna þing­­­flokka greiddur af Alþingi.

Í nýfram­lögðu fjár­laga­frum­varpi kemur fram að það eigi að lækka fram­lag til stjórn­mála­flokka úr rík­is­sjóði á árinu 2023, en nú eru þiggj­end­urnir níu þar sem Sós­í­alista­flokkur Íslands upp­fyllir einnig skil­yrði til að þiggja styrk­ina. 

Ekki er um stór­kost­lega breyt­ingu að ræða. Fram­lagið verður lækkað úr 728,2 í 692,2 millj­ónir króna á ári, eða um 36 millj­ónir króna.

Fjár­hags­staða flokka hefur kúvenst á fáum árum

Þorri tekna allra flokk­a sem eiga sæti á þingi á árinu 2020 voru fram­lög úr opin­berum sjóð­­um. Í til­­­felli Flokks fólks­ins og Pírata komu 98 pró­­sent tekna úr rík­­is­­sjóði eða frá Alþingi eða sveit­ar­fé­lög­um, í til­­­felli Mið­­flokks­ins var hlut­­fall tekna úr opin­berum sjóðum tæp­­lega 94 pró­­sent, hjá Vinstri grænum 92 pró­­sent og rúm­­lega 91 pró­­sent tekna Við­reisnar komu úr opin­berum sjóð­­um.

Fram­­sókn­­ar­­flokk­­ur­inn sótti 87 pró­­sent tekna sinna á árinu 2020 í opin­bera sjóði, Sam­­fylk­ingin 75 pró­­sent og Sjálf­­stæð­is­­flokk­­ur­inn 66 pró­­sent. 

Þessi fram­lög hafa kúvent fjár­hags­stöðu flokk­anna átta. Eigið fé þeirra jókst sam­tals um 748,5 millj­arða króna frá árs­lokum 2017 og til loka árs 2020. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent