Andersson biðst lausnar og segir Kristersson að hennar dyr standi ávallt opnar

Talningu atkvæða í Svíþjóð er lokið og stjórnarmyndunarviðræður hægra megin við miðjuna hafnar. Fráfarandi forsætisráðherra segir að Ulf Kristersson geti leitað til Sósíaldemókrata um samstarf ef viðræður við Svíþjóðardemókrata sigli í strand.

Hér eru þau saman, Ulf Kristersson formaður Hægriflokksins (Moderatarna) og Magdalena Andersson formaður Sósíaldemókrata. Ulf mun á næstunni nær örugglega taka við embætti forsætisráðherra af Magdalenu.
Hér eru þau saman, Ulf Kristersson formaður Hægriflokksins (Moderatarna) og Magdalena Andersson formaður Sósíaldemókrata. Ulf mun á næstunni nær örugglega taka við embætti forsætisráðherra af Magdalenu.
Auglýsing

Magda­lena And­ers­son for­maður Sós­í­alde­mókra­ta­flokks­ins í Sví­þjóð baðst lausnar frá emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra í morg­un, eftir að hafa játað ósigur í þing­kosn­ing­unum sem fram fóru í sunnu­dag. Henni hefur verið falið að sitja áfram í emb­ætt­inu þar til ný rík­is­stjórn hefur verið mynd­uð.

Úrslit kosn­ing­anna urðu end­an­lega ljós í gær og ljóst er að borg­ara­legu flokk­arnir þrír, auk Sví­þjóð­ar­demókrata, fara með þriggja sæta meiri­hluta í sænska þing­inu – eru með 176 þing­menn gegn 173 þing­mönnum frá flokkum frá miðju og til vinstri.

Þreif­ingar um myndun rík­is­stjórnar eru hafnar á milli flokk­anna fjög­urra á hægri vængn­um. Ljóst virð­ist að Ulf Kristers­son, leið­togi Hægri­flokks­ins (Moder­at­arna), verði næsti for­sæt­is­ráð­herra lands­ins en ekki hefur verið ákveðið hvernig rík­is­stjórn undir hans for­sæti verður sam­sett.

Eftir að hún baðst lausnar frá emb­ætti ræddi And­ers­son við fjöl­miðla og færði Ulf Kristers­son þau skila­boð að Sós­í­alde­mókratar væru opnir fyrir því að koma að stjórn­ar­sam­starfi sem teygði sig yfir miðj­una.

Það er ljós­lega ekki fyrsti kostur Kristers­son og Hægri­flokks­ins en And­ers­son sagði að ef Hægri­flokk­ur­inn skipti um skoðun og vildi starfa með henni í stað Sví­þjóð­ar­demókrata þá stæði það til boða.

Spurð um hvernig hún sæi slíkt sam­starf fyrir sér sagði And­ers­son fátt annað en að hún væri reiðu­búin að ræða við bæði Kristers­son og aðra flokka um mögu­lega sam­vinnu. „En Ulf Kristers­son hefur aug­ljós­lega valið Sví­þjóð­ar­demókratana sem sína helstu sam­starfs­menn. Og það verð ég að sætta mig við. En ef það sam­starf gengur ekki, þá standa mínar dyr opn­ar,“ sagði And­ers­son.

Tveggja flokka minni­hluta­stjórn talin lík­leg

Þrátt fyrir að flokk­arnir fjórir á hægri vængnum í Sví­þjóð hafi þing­meiri­hluta er ljóst að það gæti orðið erfitt að ná saman um rík­is­stjórn­ar­sam­starf. Sví­þjóð­ar­demókratar hafa látið sig dreyma um beina aðkomu að stjórn og þar með ráð­herra­stóla en ljóst er að slíka stjórn myndi Frjáls­lyndi flokk­ur­inn hið minnsta ekki sam­þykkja.

Auglýsing

Stjórn­mála­skýrendur í Sví­þjóð reikna því margir með því að Ulf Kristers­son horfi til þess að mynda tveggja flokka minni­hluta­stjórn Hægri­flokks­ins og Kristi­legra demókrata, en síð­ar­nefndi flokk­ur­inn er leiddur af Ebbu Busch. Þessir tveir flokkar fengu sam­an­lagt innan við 25 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum á sunnu­dag og töp­uðu báðir fylgi frá kosn­ing­unum árið 2018.

Annie Lööf hættir sem for­maður

Annie Lööf hefur verið formaður sænska Miðflokksins frá árinu 2011. Mynd: EPA

Kosn­ing­arnar á sunnu­dag­inn og úrslit þeirra hafa þegar haft nokkrar afleið­ing­ar. Annie Lööf, sem setið hefur sem for­maður Mið­flokks­ins und­an­far­inn rúman ára­tug, til­kynnti í dag að hún væri hætt sem for­maður flokks­ins.

Lööf, sem var ein­ungis 29 ára gömul er hún varð flokks­for­mað­ur, tekur þar með ábyrgð á dræmum árangri flokks­ins í kosn­ing­un­um, en Mið­flokk­ur­inn tap­aði tæpum tveimur pró­sentu­stigum frá kosn­ing­unum árið 2018 eftir að hafa undir stjórn Lööf kosið að stilla sér upp með flokka­banda­lag­inu vinstra megin miðj­unnar og úti­loka þátt­töku í stjórn til hægri sem þyrfti á stuðn­ingi Sví­þjóð­ar­demókrata að halda.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent