Ráðamenn þjóðarinnar svöruðu ekki bréfi umboðsaðila Apple

h_51561512-1.jpg
Auglýsing

Bréfi Eplis, umboðs­að­ila hug­bún­að­ar- og tölvurisans Apple hér á landi, til Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra og Ólafs Ragn­ars Gríms­sonar for­seta Íslands, varð­andi aðstoð við að semja við Apple um bygg­ingu gagna­vers á Íslandi, var aldrei svar­að. Apple afl­aði sér á sínum tíma upp­lýs­inga um Ísland en til­kynnti í gær­morgun að það ætl­aði sér að byggja tvö 166 þús­und fer­metra gagna­ver í Dan­mörku og á Írlandi. Heild­ar­fjár­fest­ing við verk­efnin er 1,7 millj­arðar evra, eða sem nemur 255 millj­örðum króna.

Frétta­stofa RÚV greindi frá þessu í gær­kvöldi. Bréf Eplis var sent í mars í fyrra en í því er óskað eftir aðstoð við að koma á fundi með for­svars­fólki Apple í Banda­ríkj­unum og vekja áhuga þeirra á því að byggja gagna­ver sitt hér. Nokkur bréf til við­bótar voru send til ítrek­un­ar, en þeim ekki heldur svar­að.

sigmundur

Auglýsing

Í sam­tali við RÚV sagði Jóhannes Þór Skúla­son, aðstoð­ar­maður for­sæt­is­ráð­herra, að ráðu­neytið hafi talið að ráð­herra gæti ekki komið að við­skipta­samn­ingum með slíkum hætti án form­legra erinda beint frá Apple. Þá sé verið að kanna hvers vegna send­ingum Eplis var ekki form­lega svarað með þessum hætti.

Eins og Kjarn­inn greindi frá í gær, þá vildu for­svars­menn Lands­virkj­unar ekki upp­lýsa um hvort það hefðu farið fram við­ræður við Apple um mögu­leik­ann á því að reisa hér á landi gagna­ver á vegum fyr­ir­tæk­is­ins sem orka frá Lands­virkjun myndi knýja. Í frétta­til­kynn­ingu Apple til kaup­hallar kemur fram að eitt af því sem réði úrslitum um að Dan­mörk og Írland urðu fyrir val­inu var mögu­leik­inn á kaupum á vist­vænni end­ur­nýj­an­legri orku.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None