Rafmagn og bensín hækka í verði

Verðbólga mælist nú í hæstu hæðum, en hana má að mestu leyti skýra með miklum verðhækkunum á fasteignamarkaði.Hins vegar hefur verðið á bensíni og rafmagni einnig hækkað hratt á síðustu mánuðum.

Verð á rafmagni tók kipp í mánuðinum.
Verð á rafmagni tók kipp í mánuðinum.
Auglýsing

Verðið á bens­íni og olíum er nú 18 pró­sentum hærra en það var fyrir ári síð­an. Sömu­leiðis tók verðið á raf­magni, sem hefur hald­ist nokkuð stöðugt á síð­ustu árum, kipp í þessum mán­uði. Þetta kemur fram í nýbirtum verð­bólgu­tölum Hag­stofu.

Sam­kvæmt töl­unum mæld­ist verð­bólgan í þessum mán­uði 5,7 pró­sent og hefur hún ekki verið meiri í tæp tíu ár. Þar vega verð­hækk­anir á fast­eigna­mark­aði þungt, en ef ekki væri tekið til­lit til þeirra í verð­bólgu­mæl­ingum myndi verð­bólgan mæl­ast 3,7 pró­sent. Sömu­leiðis hefur verðið á við­haldi og við­gerðum á hús­næði hækkað hratt, en slík þjón­usta kostar nú 7,4 pró­sentum meira en hún gerði í jan­úar í fyrra.

Hins vegar hafa aðrir vöru­flokkar einnig byrjað að hækka í verði. Þar ber helst að nefna verð­hækk­anir á bens­íni og olíum, en ef þeirra nyti ekki við væri verð­bólgan 0,6 pró­sentu­stigum lægri en hún er. Allt frá því í októ­ber í fyrra hefur verð­bólgan í vöru­flokknum „bensín og olí­ur“ verið um 20 pró­sent.

Auglýsing

Miklar breyt­ingar urðu einnig á verði raf­magns í mán­uð­in­um, en verðið á því hækk­aði um 5,8 pró­sent á milli mán­aða. Raf­magns­verð hefur venju­lega hald­ist nokkuð stöðugt, en verð­bólgan í vöru­flokknum hefur venju­lega hald­ist í kringum tvö pró­sent á síð­ustu tveimur árum. Í þessum mán­uði mæld­ist hún hins vegar sex pró­sent.

Líkt og Kjarn­inn hefur áður minnst á hefur vægi mat­vöru í verð­bólg­unni minnkað nokkuð á síð­ustu mán­uð­um, en í þessum mán­uði jókst það aft­ur. Þó eru verð­hækk­an­irnar í vöru­flokk­inum nokkuð hóf­legar á árs­grund­velli, en matur kostar nú þremur pró­sentum meira en hann gerði í jan­úar í fyrra. Mest hækka mjólk­ur­vörur í verði, en þær eru sjö pró­sentum dýr­ari en þær voru í fyrra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent