Öllum sóttvarnaráðstöfunum aflétt á næstu sex til átta vikum

Öllum sóttvarnaráðstöfunum verður aflétt á næstu sex til átta vikum samkvæmt afléttingaráætlun stjórnvalda vegna COVID-19. Forsætisráðherra segir að ef allt gengur eftir megi ekki aðeins búast við hækkandi sól í mars heldur einnig eðlilegu samfélagi.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Auglýsing

„Við færum ykkur góð tíð­indi hér í dag,“ sagði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra á blaða­manna­fundi í Safna­hús­inu í dag þar sem aflétt­ing­ar­á­ætlun stjórn­valda var kynnt. Áætl­unin er í þremur skrefum og gerir ráð fyrir að slakað verði á tak­mörk­unum í þremur skref­um. Fyrsta skrefið tekur gildi á mið­nætti, annað 24. febr­úar og í því þriðja, 14. mars, er gert ráð fyrir að öllum tak­mörk­unum verði aflétt.

„Við erum að sjá að það eru að verða raun­veru­legar breyt­ingar í bar­áttu okkar við far­ald­ur­inn, bæði vegna þess að veiran sjálf sem við erum að eiga við hefur breytt um eðli með nýju afbrigði en líka vegna góðrar bólu­setn­ing­ar­stöðu og mik­ils árang­urs íslenska heil­brigð­is­kerf­is­ins í að takast á við veiruna og sinna því fólki sem smit­ast af henn­i.“

Auglýsing

Fyrsta skref aflétt­ing­ar­innar tekur gildi á mið­nætti þegar almennar fjölda­tak­mark­anir verða 50 manns, nánd­ar­regla verður 1 metri, krár og skemmti­staðir mega opna að nýju og opn­un­ar­tími þeirra og ann­arra veit­inga­staða verður lengdur um tvær klukku­stund­ir.

Þá verður heim­ilt að halda sitj­andi við­burði fyrir 500 manns að upp­fylltum ákveðnum skil­yrð­um. Tak­mark­anir í skólum verða að mestu óbreytt­ar. Þetta er meg­in­inn­tak breyt­inga á reglu­gerð um sam­komu­tak­mark­anir sem tekur gildi 29. jan­úar sam­kvæmt ákvörðun heil­brigði­ráð­herra.

Aðrar helstu breyt­ingar sem taka gildi á morgun eru þess­ar:

  • Almennar fjölda­tak­mark­anir fari úr 10 í 50 manns.
  • Nánd­ar­regla fari úr 2 metrum í 1 metra.
  • Óbreytt grímu­skylda, sem tekur þó almennt mið af nánd­ar­reglu.
  • Sund-, bað­stað­ir, lík­ams­rækt­ar­stöðvar og skíða­svæði verði heim­ilt að hafa opið með 75% afköst­um.
  • Íþrótta­keppnir verði áfram heim­ilar með 50 þátt­tak­endum og áhorf­endur séu leyfðir á ný.
  • Hámarks­fjöldi í versl­unum geti mest orðið 500 manns.
  • Skemmti­stöð­um, krám, spila­stöðum og spila­kössum verði heim­ilað að opna á ný.
  • Veit­inga­stöð­um, þ.m.t. krám og skemmti­stöð­um, verði heim­ilt að hleypa nýjum við­skipta­vinum til kl. 23.00 en gestum verði gert að yfir­gefa stað­ina kl. 00.00.
  • Á sitj­andi við­burðum verði heim­ilt að taka á móti allt að 500 gestum í hverju hólfi, við­halda skuli 1 metra nánd­ar­reglu milli óskyldra aðila auk grímu­skyldu. Ekki verði þörf á hrað­próf­um.
  • Í skólum verði óbreyttar tak­mark­an­ir, þó þannig að þær verði aðlag­aðar fram­an­greindum til­slök­unum eftir því sem við á.
  • Reglu­gerðin gildi í tæpar fjórar vikur til og með 24. febr­ú­ar.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra kynnti fyrsta skref afléttingaráætlun stjórnvalda í dag.

Fór ekki eftir til­lögum sótt­varna­læknis í einu og öllu

„Þetta er það bjartasta sem ég hef lesið hingað til,“ sagði Willum Þór Þórs­son um minn­is­blað sótt­varna­læknis um aflétt­ing­ar­á­ætl­un­ina. Hann fór þó ekki að til­lögum sótt­varna­læknis í einu og öllu, en hann vék lít­il­lega frá til­lögum hans með því að láta nýju regl­urnar taka gildi fyrr, lengja opn­un­ar­tíma veit­inga­staða um tvær klukku­stundir í stað einnar og hækka hámarks­fjölda í versl­un­um.

Í minn­is­blaðisínu leggur sótt­varna­læknir fram áætlun að aflétt­ingu opin­berra sótt­varna­að­gerða sem hann telur rétt að gera í skref­um. Í til­kynn­ingu Stjórn­ar­ráðs­ins er tekið fram að sótt­varna­læknir áréttar að meðan á aflétt­ingum stendur megi búast við að sam­fé­lags­smitum muni fjölga tíma­bundið sem geti bæði haft þau áhrif að þeim sem veik­ist alvar­lega fjölgi en jafn­framt geti starf­semi margra fyr­ir­tækja raskast vegna veik­inda starfs­manna. Neyð­ar­á­stand geti því skap­ast á mörgum vinnu­stöðum sem krefj­ist sér­stakra úrræða og fyr­ir­tæki þurfi að vera undir það búin að starfa í ein­hvern tíma með skertu vinnu­afli. Mik­il­vægt sé að hafa í huga að far­aldr­inum ljúki ekki hér á landi fyrr en gott sam­fé­lags­legt ónæmi hafi skapast, sem gæti náðst eftir tæpa tvo mán­uði.

Að mati sótt­varna­læknis er skyn­sam­legt að miða við að um miðjan mars 2022 verði öllum tak­mörk­unum aflétt svo fremi sem núver­andi for­sendur haldi, þ.e. ekki komi upp ný afbrigði veirunnar og aukn­ing verði ekki á alvar­legum veik­indum sem valdi of miklu álagi á heil­brigð­is­kerfið eða of mikil veik­inda­for­föll starfs­manna verði í ýmsum fyr­ir­tækjum sem skapi neyð­ar­á­stand.

Heil­brigð­is­ráð­herra og rík­is­stjórnin munu hafa aflétt­ing­ar­á­ætl­un­ina til hlið­sjónar vegna næstu aflétt­inga og verður staðan metin reglu­lega, einkum álag á heil­brigð­is­kerf­ið, og verður brugð­ist við í sam­ræmi við stöð­una. Það getur þýtt að ráð­ist verði fyrr í aflétt­ingar en áætl­unin gerir ráð fyrir eða þeim frestað ef for­sendur breytast, svo sem vegna nýrra afbrigða veirunn­ar.

Katrín segir að ef allt gengur eftir áætlun verði búið að aflétta öllum aðgerðum um miðjan mars. „Ef allt gengur vel eins og við öll að sjálfs­göðu vonum getum við ekki bara horft fram á hækk­andi sól í mars heldur líka eðli­legt sam­fé­lag,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent