Rakel Þorbergsdóttir hefur ákveðið að láta af störfum sem fréttastjóri RÚV. Hún tilkynnti starfsmönnum fréttastofu þetta á fundi sem hófst í dag klukkan 13.
Í kjölfarið var sendur póstur frá Stefáni Eiríkssyni útvarpsstjóra á aðra starfsmenn sem voru ekki viðstaddir fundinn með tíðindunum. Í honum stóð: „Rakel Þorbergsdóttir hefur ákveðið að láta af starfi fréttastjóra RÚV um næstu áramót. Rakel hefur gegnt starfinu frá því í apríl 2014 og í heild starfað í 22 ár á fréttastofum RÚV. Tilkynning verður sett inn á vefinn okkar í dag og send öðrum miðlum.
Rakel hefur leitt fréttastofuna undanfarin ár af mikilli fagmennsku og öryggi og fest hana í sessi sem þann fréttamiðil sem fólk ber mest traust til. Hún hefur sýnt framsýni í störfum sínum og lagt mikilvægan grunn undir starfsemi fréttastofunnar til næstu ára. Fyrir hönd RÚV færi ég henni hlýjar kveðjur og þakkir fyrir hennar mikilvæga framlag og frábæru störf á liðnum árum og óska henni alls hins besta í framtíðinni.
Starf fréttastjóra verður auglýst laust til umsóknar fljótlega á nýju ári. Heiðar Örn Sigurfinnsson varafréttastjóri gegnir starfi fréttastjóra frá því að Rakel lætur af störfum um áramótin og þar til nýr fréttastjóri hefur verið ráðinn.“
Í tilkynningu sem barst frá RÚV um tuttugu mínútum eftir að starfsfólki fréttastofunnar var tilkynnt um brotthvarf Rakelar er haft eftir henni að árin á fréttastofu RÚV og í starfi fréttastjóra hafi verið afar lærdómsrík, krefjandi og skemmtileg.
„Ákvörðun mín var því ekki auðveld, fréttastofan er frábær vinnustaður en það er öllum hollt að breyta til og takast á við nýjar áskoranir. Starfsemin er í traustum höndum úrvals samstarfsfólks sem hefur staðið sig frábærlega á mjög krefjandi tímum. Allar mælingar staðfesta að fréttastofa RÚV er sá miðill sem þjóðin reiðir sig á, treystir og leitar til, sérstaklega þegar mikið liggur við. Ég er gríðarlega stolt af frammistöðu okkar fólks og það hefur verið heiður að fá að stýra þessari öflugu og rótgrónu fréttastofu síðustu ár. Ég kveð með söknuði og hlýju í garð minna góðu félaga á RÚV,“ er haft eftir Rakel.
Fréttastjóri er æðsti yfirmaður fréttastofu RÚV, sem er stærsta fréttastofa landsins.
Rakel var ráðin fréttastjóri á RÚV í apríl 2014. Hún hafði þá gegnt stöðu varafréttastjóra á fréttastofu RÚV um hríð, en hún tók við fréttastjórastöðunni af Óðni Jónssyni.
Alls sóttu tólf um fréttastjórastöðuna síðast þegar hún var auglýst, en þeirra á meðal var Heiðar Örn Sigurfinnsson, Jóhann Hlíðar Harðarson og Pálmi Jónasson fréttamenn á RÚV og Jóhann Hauksson blaðamaður.
Eftir að umsækjendahópurinn var skorinn niður, stóðu fjórir þeirra eftir um hituna. Þau þrjú sem komu til álita um fréttastjórastöðuna auk Rakelar, voru Svavar Halldórsson fyrrverandi fréttamaður á RÚV, Ingólfur Bjarni Sigfússon, sem hefur lengi starfað á RÚV og Sigríður Hagalín Björnsdóttir, þá varafréttastjóri.