Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á tilraun til að kúga fé út úr Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra er ekki enn lokið. Þetta staðfestir Friðrik Smári Björgvinsson, yfirmaður hjá rannsóknardeild lögreglunnar, í samtali við Kjarnann.
Friðrik Smári segir málin enn vera í rannsókn, þau séu langt komin en rannsókn sé ekki enn lokið. Ekki sé hægt að segja til um það hvenær rannsóknum ljúki. Niðurstöður lífsýnarannsókna liggja fyrir en enn á eftir að ljúka skýrslutökum.
Málin sem rannsóknin snýr að eru í raun þrjú. Það fyrsta snýst um tilraun systranna Hlínar Einarsdóttur og Malínar Brand til þess að kúga fé út úr forsætisráðherra, sem komst upp um í byrjun júní síðastliðins. Í lok maí voru systurnar handteknar eftir að hafa sent Sigmundi Davíð fjárkúgunarbréf, þar sem þess var krafist að hann greiddi þeim peninga, átta milljónir króna, og skildi eftir á tilteknum stað syðst í Hafnarfirði, þar sem þær voru handteknar. Hlín hefur játað að hafa ætlað að kúga fé út úr Sigmundi Davíð en Malín sagðist í yfirlýsingum ekki hafa skipulagt fjárkúgunina heldur aðeins aðstoðað systur sína við að ná í peningana sem áttu að fást út úr kúguninni. Þessu hefur Hlín mótmælt.
Skömmu síðar kom upp annað mál, þar sem fyrrverandi samstarfsmaður Hlínar kærði systurnar einnig fyrir fjárkúgun, sem hefði átt sér stað í apríl. Hann sagði systurnar hafa hótað að kæra hann fyrir nauðgun ef hann greiddi þeim ekki 750 þúsund krónur. Systurnar komu þá fram og sögðu að seinna málið hefði verið sátt í nauðgunarmáli. Nokkrum dögum eftir að maðurinn lagði fram kæru lagði Hlín fram kæru gegn honum fyrir nauðgun.
Sögðust hafa upplýsingar sem kæmu forsætisráðherra illa
Upplýsingarnar í fjárkúgunarbréfinu áttu að koma Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra illa, og hótað var að gera þær opinberar í bréfinu sem stílað var á eiginkonu hans. Þessar upplýsingar snérust um að Sigmundur Davíð eða aðilar tengdir honum hafi haft aðkomu að því að Pressan hafi fengið lánafyrirgreiðslu hjá MP banka. Björn Ingi, aðaleigandi Pressunnar, er með sterk tengsl við Framsóknarflokkinn. Hann starfaði á árum áður sem aðstoðarmaður þáverandi forsætisráðherra flokksins, Halldórs Ásgrímssonar, og sat fyrir hönd hans í borgarstjórn Reykjavíkur um skeið. Björn Ingi tilkynnti hins vegar að hann væri hættur afskiptum af stjórnmálum í byrjun árs 2008 og hefur síðan þá starfað við fjölmiðla.
Vísir greindi fyrst frá því að upplýsingarnar hefðu átt að tengjast MP banka. Þar var rætt við Arnar Ægisson, framkvæmdastjóra Pressunnar, um rúmlega 60 milljón króna hækkun á skuldum félagsins á árinu 2013. Þar segir hann að líklega sé um að ræða yfirfærslu á yfirdrætti sem var í eignarhaldsfélaginu Vefpressunni ehf. Hann staðfestir að yfirdrátturinn sé hjá MP banka. Arnar hafnaði strax öllum tengslum Pressunnar við forsætisráðherra. Hann hafnaði einnig að lánafyrirgreiðsla MP banka hafi verið fengin að tilstillan Sigmundar Davíðs eða aðilum tengdum honum.
Fyrst um sinn voru sagðar fréttir af því að kúgunin hafi snúist um upplýsingar um að Sigmundur Davíð hefði tengst fjármögnun á kaupum Björns Inga á DV. Björn Ingi setti inn færslu á Facebook þriðjudaginn 2. júní. Þar sagði hann: „Ég er harmi sleginn yfir fregnum dagsins. Hugur minn er hjá þeim sem um sárt eiga að binda vegna þessa máls. Forsætisráðherra fjármagnaði ekki kaup Pressunnar á DV. Hann á ekki hlut í blaðinu. Að öðru leyti óska ég eftir því að tekið sé tillit til þess að hér er mannlegur harmleikur á ferðinni og að aðgát skuli höfð í nærveru sálar.“
Sigmundur Davíð sendi frá sér yfirlýsingu sama dag þar sem sagði m.a.: „ég hef engin fjárhagsleg tengsl við Björn Inga Hrafnsson, né hef ég komið að kaupum Vefpressunnar á DV á nokkurn hátt.“ Síðar setti forsætisráðherra svo inn stöðuuppfærslu á Facebook þar sem hann ítrekaði að hann hefði „ekki nokkra einustu aðkomu að eigendaskiptum á DV og veit ekkert um aðdraganda og gang þeirra mála.“