Rekstrartekjur Kjarnans hafa vaxið um 80 prósent á tveimur árum

Ársverkum hjá Kjarnanum fjölgaði um rúmlega þrjú í fyrra og vöxtur var í öllum helstu tekjustoðum miðilsins. Lesendur Kjarnans hafa aldrei verið fleiri en þeir voru á árinu 2021.

Hápunktur í starfsemi Kjarnans á árinu 2021 var þegar ritstjórn hans hlaut Blaðamannaverðlaunin fyrir umfangsmikla umfjöllun um brunann á Bræðraborgarstíg sem birtist í nóvember árið áður.
Hápunktur í starfsemi Kjarnans á árinu 2021 var þegar ritstjórn hans hlaut Blaðamannaverðlaunin fyrir umfangsmikla umfjöllun um brunann á Bræðraborgarstíg sem birtist í nóvember árið áður.
Auglýsing

Rekstr­ar­tekjur Kjarn­ans juk­ust um 37 pró­sent á síð­asta ári og voru tæp­lega 107 millj­ónir króna. Frá árinu 2019 hafa þær vaxið um 80 pró­sent. Vöxt­ur­inn er fyrst og síð­ast vegna þess að greiðslum í Kjarna­sam­fé­lagið hefur fjölgað og með­al­upp­hæð þeirra hækk­að. Þá hafa tekjur af áskriftum að Vís­bend­ingu og enskra frétta­bréfa sem Kjarn­inn á og rekur auk­ist og tekjur vegna aug­lýs­inga­sölu tvö­föld­uð­ust milli ára. 

Þetta er meðal þess sem fram kemur í árs­reikn­ingi Kjarn­ans vegna árs­ins 2021 sem sam­þykktur var á stjórn­ar­fundi þriðju­dag­inn 30. ágúst síð­ast­lið­inn. 

Rekstr­ar­gjöld hækk­uðu um 32 pró­sent og voru 111 millj­ónir króna í fyrra. Þar er fyrst og síð­ast um auk­inn launa­kostnað að ræða vegna þess að fjöldi árs­verka jókst úr 6,2 árið 2020 í 9,3 á árinu 2021 og vegna samn­ings­bund­inna launa­hækk­ana sem tóku gildi á tíma­bil­inu. Alls jókst launa­kostn­aður Kjarn­ans um 35 pró­sent en laun og launa­tengd gjöld eru 85 pró­sent af öllum rekstr­ar­gjöldum síð­asta árs. Er það í sam­ræmi við þá stefnu Kjarn­ans að ráð­stafa auknum tekjum í að efla starf­semi fjöl­mið­ils­ins með því að ráða fleira starfs­fólk á rit­stjórn hans. 

Alls nam tap af rekstri 4,9 millj­ónum króna en er 1,2 millj­ónum króna minna tap en árið 2020. 

Orð­inn níu ára og lestur aldrei meiri

Kjarn­inn fékk fjöl­miðla­styrk úr rík­is­sjóði upp á 14,4 millj­ónir króna á síð­asta ári, en alls var 389 millj­ónir króna úthlutað í slíka á árinu 2021. Í hlut Kjarn­ans féll því 3,7 pró­sent af heild­ar­upp­hæð­inni sem var úthlut­að. Þrjú stærstu einka­reknu fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins, Árvak­ur, Sýn og Torg, fengu sam­tals 244 millj­ónir króna eða 63 pró­sent af þeim styrkjum sem var úthlut­að. 

Auglýsing
Eigið fé útgáfu­fé­lags Kjarn­ans var 25,8 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót og lang­tíma­skuldir félags­ins fimm millj­ónir króna. 

Kjarn­inn var stofn­aður árið 2013 og birt­ist les­endum fyrst í ágúst það ár. Fjöl­mið­ill­inn fagnar því níu ára afmæli um þessar mund­ir­. Kjarn­inn hefur hlotið til­­­nefn­ingu til Blaða­­manna­verð­­launa á hverju ári sem hann hefur starf­að. Alls hafa blaða­­menn hans hlotið verð­­launin fjórum sinnum á því tíma­bili, síð­­­ast í ár fyrir umfjöllun um Skæru­liða­deild Sam­herja. Hann hlaut verð­launin einnig árið 2021 ­fyr­ir umfangs­­mikla umfjöllun um brun­ann á Bræðra­­borg­­ar­­stíg

Lestur Kjarn­ans var meiri í fyrra en hann hefur nokkru sinni verið áður og var 20 pró­sent meiri en hann var árið 2019. Það sem af er árinu 2022 hefur lestur auk­ist frá því sem hann var á síð­asta ári.

Eign­­ar­hald Kjarn­ans miðla:

  • Hg80 ehf., eig­andi Hjálmar Gísla­­son 18.39%
  • Mið­eind ehf., eig­andi Vil­hjálmur Þor­­steins­­son 18.02%
  • Birna Anna Björns­dótt­ir, 11.65%
  • Magnús Hall­­dór­s­­son, 9.47%
  • Þórður Snær Júl­í­us­­son, 8.04%
  • Hjalti Harð­­ar­­son, 6.10%
  • Fagri­­skógur ehf., eig­andi Stefán Hrafn­kels­­son, 3.75%
  • Milo ehf., eig­endur Guð­­mundur Haf­­steins­­son og Edda Haf­­steins­dótt­ir, 3.75%
  • Voga­bakki ehf., eig­endur Árni Hauks­­son og Hall­­björn Karls­­son, 5.02%
  • Charlotta María Hauks­dóttir og Úlfar Erlings­­son, 7.50%
  • Birgir Þór Harð­­ar­­son, 1.91%
  • Jónas Reynir Gunn­­ar­s­­son, 1.91%
  • Fanney Birna Jóns­dótt­ir, 0.75%

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent