Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar (A og B hluta) var jákvæð um 303 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Það er langtum minni afgangur en áætlanir gerðu ráð fyrir, en í þeim var gert ráð fyrir 2.141 milljón króna afgangi á tímabilinu. Ástæður fyrir slæmu hálfsársuppgjöri eru sagðar minni hagnaður Orkuveitu Reykjavíkur vegna lækkandi álverðs og einnig lakari afkomu A-hluta borgarinnar en áætlun gerði ráð fyrir. Þar ræður hækkun launakostnaðar og minni sala á byggingarrétti mestu. Alls nam tap af rekstri A-hluta rúmum þremur milljörðum króna.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg um reksturinn á fyrri hluta árs.
„Niðurstaða sex mánaða uppgjörsins kemur ekki á óvart og undirstrikar að það er áskorun að eiga fyrir nýgerðum kjarasamningum og mikilvægi þess að árangur náist í endurmati á málaflokki fatlaðs fólks og daggjöldum hjá hjúkrunarheimilum, en um milljarð vantar upp á að ríkið láti þá fjármuni fylgja sem þarf vegna þessa. Mikil uppbygging framundan léttir þó undir og við munum taka skipulega og fast á fjármálunum, líkt og undanfarin ár,“ segir Dagur B.Eggertsson borgarstjóri í tilkynningu.
Mikið tap af rekstri A-hluta
Tap af rekstri A-hluta borgarinnar nam 3.038 milljóum króna á fyrstu sex mánuðum ársins, en áætlanir gerðu ráð fyrir að hún yrði neikvæð um 1.865 milljónir á tímabilinu. Til A- hluta tekst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Verri afkoma er eins og fyrr greinir rakin til lækgri tekna af sölu byggingarréttar og sölu fasteigna, sem var 552 milljónum króna undir áætlun, og hækkun launakostnaðar umfram áætlun um 403 milljónir króna.
Heildareignir samstæðu Reykjavíkurborgar, það eru A og B hlutar, námu í lok júní samtals 513.207 milljónum króna. Heildarskuldir ásamt skuldbindingum námu 282.812 milljónum króna og eigið fé var 220.395 milljónir króna. Eiginfjárhlutfall er 42,9 prósent en var 41, prósent um síðustu áramót.
Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf., Íþrótta- og sýningahöllin hf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Orkuveita Reykjavíkur, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Aflvaka hf og Jörundar ehf.
Sjálfstæðismenn ósáttir
Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins sendi frá sér yfirlýsingu í kjölfar birtingu uppgjörsins í dag og benti á að Fjármálaskrifstofa borgarinnar segi í skýrslu sinni að þessi slæma niðurstaða kalli á viðbrögð í fjármálastjórn borgarinnar. „Mikill þungi er í þeim orðum fjármálaskrifstofunnar og undirstrikar þörf þess að markviss vinna verði sett strax af stað við að taka á rekstrarvandamálum Reykjavíkurborgar. Við afgreiðslu ársreiknings ársins 2014 lögðu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins til að slík vinna færi strax af stað,“ segja sjálfstæðismenn.