Reykjanesbær getur ekki upplýst um hvort hann muni greiða skuldir Reykjaneshafnar

reykjanesb--r.jpg
Auglýsing

Reykja­nes­bær getur ekki veitt frek­ari upp­lýs­ingar um hvort sveita­fé­lagið muni greiða skuld­bind­ingar fyrir Reykja­nes­höfn sem eru á gjald­daga 15. októ­ber næst­kom­andi. Ekki er heldur hægt að fá upp­lýs­ingar um hversu háa upp­hæð er að ræða. Þetta kemur fram í svari Kjart­ans Más Kjart­ans­son­ar, bæj­ar­stjóra Reykja­nes­bæj­ar, við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um mál­ið. Þar segir einnig: "Reykja­nes­bær á í við­ræðum við ýmsa aðila um end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála sveit­ar­fé­lags­ins og á meðan ekki er komin nið­ur­stað í þau mál getum við ekki tjáð okkur frek­ar."

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans er von á því að nið­ur­staða fáist í fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu Reykja­nes­bæjar á næstu fjórum til sex vik­um.

Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ. Kjartan Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri í Reykja­nes­bæ.

Auglýsing

Kjarn­inn greindi frá því í gær að Reykja­nes­höfn hefði form­lega óskað eftir fjár­magni frá­ Reykja­nesbæ til að geta staðið við greiðslur lána sem eru á gjald­daga 15. októ­ber næst­kom­andi. Á meðal þess sem höfnin þarf að greiða af eru tveir skulda­bréfa­flokk­ar. Þetta kom fram í  til­kynn­ingu til Kaup­hallar, en umrædd skulda­bréf eru skráð þar. Í til­kynn­ing­unni sagði einnig: „Vegna yfir­stand­andi vinnu við fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu Reykja­nes­bæjar er óvissa um mögu­leika Reykja­nes­bæjar til að fjár­magna greiðsl­urn­ar. Því getur komið til greiðslu­falls á skuld­bind­ingum Reykja­nes­hafn­ar.“

Reykja­nes­bær, er skuld­settasta sveit­ar­fé­lag lands­ins. Skuldir þess voru tæp­lega 41 millj­arður króna í lok árs 2014. Skuld­irnar eru rúm­lega 250 pró­sent af reglu­legum tekjum sveit­ar­fé­lags­ins en sam­kvæmt sveit­ar­stjórn­ar­lögum sem tóku gildi árið 2012 þá er leyfi­legt skulda­hlut­fall að hámarki 150 pró­sent. Skulda­staða Reykja­nes­bæjar er því bein­leiðis í and­stöðu við lög og getur illa séð af fé til að borga skuldir Reykja­nes­hafn­ar, sem skuldar rúma sjö millj­arða króna, aðal­lega vegna upp­bygg­ingu Helgu­vík­ur­hafn­ar. ­Tekjur á móti þeim skuldum sem stofnað var til eru litlar en reiknað var með að þær myndu að mestu leyti koma frá stór­iðju sem átti að byggj­ast upp á svæð­inu og nýta þjón­ustu hafn­ar­inn­ar. Þau stór­iðju­á­form hafa enn sem komið er ekki orðið að veru­leika.

Á fimmtu­dag var útkomu­spá Reykja­nes­bæjar fyrir árið 2015 birt í Kaup­höll­inni, en hún var tekin fyrir í bæj­ar­ráði sveit­ar­fé­lags­ins í sama dag. Sam­kvæmt henni verður sam­an­dregin rekstr­ar­nið­ur­staða nei­kvæð um 716 millj­ónir króna á árinu, sem er um 300 millj­ón­um krónum verra en áætl­anir gerðu ráð fyr­ir. A-hlut­inn, sem er grunn­rekstur sveit­ar­fé­lags­ins, mun verða rek­inn með 725 millj­óna króna tapi, en áætl­anir gerðu ráð fyrir 514 milljón króna tapi. Sam­an­lag­aður rekstur A- og B-hluta, sem er aðal­lega Reykja­nes­höfn og Fast­eignir Reykja­nes­bæj­ar, mun verða rek­inn með 716 milljón króna tapi en áætl­anir höfðu gert fyrir að tapið yrði 411 millj­ónir krona.

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None