Reykjaneshöfn hefur óskað eftir fjármagni frá Reykjanesbæ til að geta staðið við greiðslur lána sem eru á gjalddaga 15. október næstkomandi. Á meðal þess sem höfnin þarf að greiða af eru tveir skuldabréfaflokkar. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallar, en umrædd skuldabréf eru skráð þar. Í tilkynningunni segir einnig: "Vegna yfirstandandi vinnu við fjárhagslega endurskipulagningu Reykjanesbæjar er óvissa um möguleika Reykjanesbæjar til að fjármagna greiðslurnar. Því getur komið til greiðslufalls á skuldbindingum Reykjaneshafnar."
Reykjanesbær, er skuldsettasta sveitarfélag landsins. Skuldir þess voru tæplega 41 milljarður króna í lok árs 2014. Skuldirnar eru rúmlega 250 prósent af reglulegum tekjum sveitarfélagsins en samkvæmt sveitarstjórnarlögum sem tóku gildi árið 2012 þá er leyfilegt skuldahlutfall að hámarki 150 prósent. Skuldastaða Reykjanesbæjar er því beinleiðis í andstöðu við lög og getur illa séð af fé til að borga skuldir Reykjaneshafnar, sem skuldar rúma sjö milljarða króna, aðallega vegna uppbyggingu Helguvíkurhafnar. Tekjur á móti þeim skuldum sem stofnað var til eru litlar en reiknað var með að þær myndu að mestu leyti koma frá stóriðju sem átti að byggjast upp á svæðinu og nýta þjónustu hafnarinnar. Þau stóriðjuáform hafa enn sem komið er ekki orðið að veruleika.
Í gær var útkomuspá Reykjanesbæjar fyrir árið 2015 birt í Kauphöllinni, en hún var tekin fyrir í bæjarráði sveitarfélagsins í gær. Samkvæmt henni verður samandregin rekstrarniðurstaða neikvæð um 716 milljónir króna á árinu, sem er um 300 milljónum krónum verra en áætlanir gerðu ráð fyrir. A-hlutinn, sem er grunnrekstur sveitarfélagsins, mun verða rekinn með 725 milljóna króna tapi, en áætlanir gerðu ráð fyrir 514 milljón króna tapi. Samanlagaður rekstur A- og B-hluta, sem er aðallega Reykjaneshöfn og Fasteignir Reykjanesbæjar, mun verða rekinn með 716 milljón króna tapi en áætlanir höfðu gert fyrir að tapið yrði 411 milljónir krona.