Ríflega 200 læknanemar ætla ekki að sækja um stöður kandídata

Picture.075.jpg
Auglýsing

Rúm­lega tvö hund­ruð íslenskir lækna­nemar á 4. til 6. ári hafa skrifað undir yfir­lýs­ingu þess efnis að þeir muni ekki sækja um stöður kandídata eða aðstoð­ar­lækna við heil­brigð­is­stofn­anir lands­ins, fyrr en samn­ingar nást milli ríkis og lækna. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu sem Kjarn­anum barst í morgun frá for­svars­mönnum und­ir­skrifta­söfn­un­ar­inn­ar.

Lækna­nemar við lækna­deild Háskóla Íslands munu afhenda Bjarna Bene­dikts­syn­i, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, und­ir­skrift­ar­list­ann við fjár­mála­ráðu­neytið klukkan 15:15 í dag. Ráð­herra hefur fall­ist á að hitta lækna­nem­ana og veita nafna­list­anum við­töku. Allir læknar og lækna­nemar eru hvattir til að mæta af þessu til­efni, og því má búast við fjölda manns á stað­inn.

For­saga máls­ins



Grunn­nám í lækn­is­fræði er 6 ár. Að því loknu fara útskrif­aðir læknar á kantídatsári til starfa á ýmsum sviðum hjá heil­brigð­is­stofn­unum lands­ins í eitt ár til að öðl­ast lækn­inga­leyfi hér á landi. Þá vinna margir lækna­nemar á 4. og 5. ári sem aðstoð­ar­læknar á Land­spít­al­anum og öðrum heil­brigð­is­stofn­unum yfir sum­ar­tím­ann og fá þá tíma­bundið lækn­inga­leyfi.

Á aðal­fundi Lækna­fé­lags Íslands, þann 25. sept­em­ber síð­ast­lið­inn, afhentu 6. árs lækna­nemar við lækna­deild Háskóla Íslands Krist­jáni Þór Júl­í­us­syni heil­brigð­is­ráð­herra yfir­lýs­ingu þess efnis að þeir myndu ekki sækja um stöður kandídata eða aðstoð­ar­lækna við heil­brigð­is­stofn­anir lands­ins fyrr en samn­ingar næð­ust milli ríkis og lækna. Alls skrif­uðu 42 lækna­nemar á loka­ári undir yfir­lýs­ing­una. Í kjöl­farið söfn­uð­ust und­ir­skriftir hjá 4. og 5. árs lækna­nemum hér á landi og íslenskum lækna­nemum á 4.-6. ári í Dan­mörku og Ung­verja­landi. Alls hafa safn­ast 200 und­ir­skriftir sem lækna­nemar afhenda fjár­mála­ráð­herra í dag.

Auglýsing

Hvaða áhrif munu aðgerð­irnar hafa?



Lækna­kandídatar og lækna­nemar hafa mannað um 75 stöðu­gildi aðstoð­ar­lækna yfir sum­ar­tím­ann á Land­spít­al­anum sein­ustu ár, sem er um 40 pró­sent af öllum stöðu­gildum lækna sem ekki hafa sér­fræði­mennt­un. Kandídatar og lækna­nemar sinna mik­il­vægu hlut­verki á spít­al­anum og vinna þeir ekki ein­ungis dag­vinnu heldur einnig vakta­vinnu á kvöldin og um helg­ar. Því er ljóst að þessar aðgerðir munu hafa mikil áhrif á dag­lega starf­semi spít­al­ans ef til þeirra kem­ur. Að auki hafa um 50 lækna­nemar og kandídatar unnið á heilsu­gæslum og öðrum heil­brigð­is­stofn­unum á sumrin og munu aðgerð­irnar því hafa við­tæk áhrif um allt land.

„Ég vil taka það fram að þessi und­ir­skrift­ar­söfnun fór fram áður en boðað var til verk­falls. Við gerum þetta til að styðja kjara­bar­áttu lækna en líka vegna þess að við treystum okkur ein­fald­lega ekki til að starfa sem læknar eins og staðan er í heil­brigð­is­kerf­inu í dag,“ segir Daði Helga­son, tals­maður 6. árs lækna­nema í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans.

Launin eru rót vand­ans, en fleira kemur til



„Launin eru rót vand­ans og þau skipta okkur auð­vitað miklu máli. En vegna lágra launa og nið­ur­skurðar sein­ustu ár hefur skap­ast ástand þar sem mann­ekla er mikil og álagið á þeim sem eftir eru er gíf­ur­legt. Við þessar aðstæður gefst ekki mik­ill tími til að kenna og leið­beina nemum og þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í starfi og af þessum ástæðum treystum við okkur ekki til að mæta til starfa,“ skrifar Daði Helga­son.

„Við vonum auð­vitað að samn­ingar náist og að við getum mætt til starfa næsta sum­ar, því að við viljum leggja okkar að mörkum til að byggja heil­brigð­is­kerfið upp á nýjan leik, en miðað við hvað verk­fallið hefur staðið yfir lengi og hljóðið í ráða­mönnum er ég ekk­ert alltof bjart­sýnn á fram­hald­ið.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None