Íslenska ríkið áfrýjaði ekki niðurstöðu héraðsdóms Reykjavíkur í máli Snædísar Ránar Hjartardóttur, en hún stefndi íslenskra ríkinu og Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra vegna framkvæmdar félagslega túlkasjóðsins, þegar henni var synjað um endurgjaldslausa túlkaþjónustu. Vísir greinir frá þessu, en frestur til áfrýjunar rann út í gær.
Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu í lok júní að með því að hafna því að veita heyrnarlausum eða heyrnarskertum túlkaþjónustu er brotið á stjórnarskrárvörðum rétti þeirra til lágmarksaðstoðar. Ríkið á samkvæmt dómnum að greiða Snædísi rúmlega 550 þúsund krónur í miskabætur.
Eins og greint hefur verið frá í fjölmiðlum hefur félagslegi táknmálstúlkasjóðurinn, sem er eins og nafnið gefur til kynna ætlaður til notkunar í ýmsum félagslegum athöfnum, tæmst reglulega undanfarið. Þegar sjóðurinn tæmist fær enginn sem á þarf að halda endurgjaldslausa þjónustu túlka.
Samkvæmt dómi héraðsdóms gengur réttur heyrnarlausra til lágmarksþjónustu framar fyrirmælum fjárlaga um greiðslu framlaga til endurgjaldslausrar táknmálstúlkunar. Þá segir í dómnum að með því að „vanrækja að setja reglur og byggja upp kerfi, sem miðar að því að tryggja einstaklingum með þá fötlun, sem stefnandi glímir við, viðhlítandi aðstoð að þessu leyti á jafnræðisgrundvelli í samræmi við kröfur 1. mgr. 76. gr. stjórnarskrárinnar, er dregið úr lífsgæðum hennar og stuðlað að aukinni félagslegri einangrun. Það felur í sér ólögmæta meingerð gegn persónu stefnanda sem bakar aðalstefndu skyldu til að greiða henni miskabætur.“ Það beri að líta á þessa vanrækslu við að byggja upp kerfi sem almenna vanrækslu, en ekki sérstaklega vanrækslu gagnvart Snædísi.
Í dómnum kemur einnig fram að sú tilhögun á fjárveitingu í sjóðinn og þar með úthlutun úr honum, að skammta til þriggja mánaða í senn, samrýmist ekki almennri jafnræðisreglu. Það mismuni notendum eftir því hvenær þeir þurfa á þjónustu að halda á árinu.
Páll Rúnar Kristjánsson, lögmaður Snædísar, segir í samtali við Vísi í dag að þetta sé fullnaðarsigur í málinu. Nú sé boltinn hjá stjórnvöldum enda hafi úrskurðurinn gífurlegt fordæmisgildi fyrir ríkið. „Hann hefur í för með sér að fólk eigi að fá þessa þjónustu og það endurgjaldslaust.“ Hann segir að nú þurfi stjórnvöld að hafa frumkvæði að því að bæta fólki tjón sem það hefur orðið fyrir.