Ríkið skipaði 191 nýja nefnd í fyrra - 24% uppfylltu ekki jafnréttislög

10016383485_15e5251efe_z.jpg
Auglýsing

Ríkið skip­aði í 191 nýjar nefnd­ir, ráð og stjórnir í fyrra, sam­kvæmt nýrri skýrslu frá Jafn­rétt­is­ráði. Af þessum 191 voru 76%, eða 146, í sam­ræmi við jafn­rétt­islög. 54 nefnd­ir, eða 24%, voru það ekki.

Inn­an­rík­is­ráðu­neytið skar sig úr og aðeins 53% nefnda sem skip­aðar voru þar í fyrra voru í sam­ræmi við fimmt­ándu grein jafn­rétt­islag­anna. Nefndir á vegum ráðu­neyt­is­ins hafa verið tals­vert til umfjöll­unar und­an­farið eftir að í ljós kom að dóm­nefnd sem fjallar um hæfi umsækj­enda um dóm­ara­emb­ætti er ein­göngu skipuð körlum, og þeir aðilar sem skipa full­trúa í nefnd­ina telja sig vera und­an­þegna jafn­rétt­islög­um.

Hjá umhverf­is- og auð­linda­ráðu­neyt­inu var hlut­fall nefnda í sam­ræmi við lög 62%, þrettán nefndir voru skip­aðar og þar af voru átta í sam­ræmi við jafn­rétt­islög­in.

Auglýsing

For­sæt­is­ráðu­neytið skip­aði í tíu nefnd­ir, og sjö þeirra eða 70% voru í sam­ræmi við jafn­rétt­islög­in. Fjár­mála­ráðu­neytið skip­aði 21 nefnd og 71% voru í sam­ræmi við lög­in, eða 15 nefnd­ir.

Á vegum mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins voru skip­aðar 41 nefnd, ráð og stjórnir í fyrra, og 78 pró­sent þeirra eða 32 voru í sam­ræmi við lög­in. Hjá atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu var hlut­fallið 83%, 25 af þeim 30 nefndum sem voru skip­aðar voru í sam­ræmi við lög.

95% nefnda vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins upp­fylltu jafn­rétt­islög­in, en tvær af 41 nefnd sem þar var skipuð var ekki í sam­ræmi við lög­in. Utan­rík­is­ráðu­neytið skip­aði aðeins þrjár nefndir í fyrra og allar upp­fylltu þær jafn­rétt­islög­in.

Jafn­rétt­is­stofa bendir á það í sinni skýrslu að í sumum til­fellum séu nefndir skip­aðar á grund­velli laga sem til­greina hvaða emb­ætt­is­menn eigi að vera í þeim, og slíku sé ekki hægt að hrófla við nema með laga­breyt­ing­um. Það á hins vegar ekki við um dóm­nefnd­ina á vegum inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, sem áður var nefnd. Í nið­ur­stöðum Jafn­rétt­is­stofu er sér­stak­lega tekið fram að það séu ýmsar ástæður sem telj­ist hlut­lægar og mál­efna­legar þegar komi að því að beita und­an­þágu­heim­ild frá því að til­nefna eigi bæði karl og konu í nefnd­ir. „Jafn­rétt­is­stofa hefur tekið til greina þætti eins og reynslu og sér­þekk­ingu starfs­fólks. Aðrar ástæður svo sem að til­nefn­ing­ar­að­ili vilji ekki til­nefna nema einn eru ekki hlut­lægar ástæður sem falla undir und­an­þágu­heim­ild­ina.“

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None