Hæstiréttur staðfesti í dag fengna niðurstöðu héraðsdóms Reykjavíkur um að íslenska ríkinu hafi verið heimilt að stöðva verkföll Bandalags háskólamanna (BHM) með lagasetningu í júní síðastliðnum. Fréttastofa RÚV greinir frá niðurstöðu málsins í dag.
Kjaradeilu aðildarfélaga BHM var vísað til ríkissáttasemjara í lok mars síðastliðnum. Haldnir voru 24 fundir sem báru ekki árangur. Þann 13. júní síðastliðinn voru samþykkt lög á Alþingi sem bönnuðu verkföll Félags geislafræðinga, Félags lífeindafræðinga, Ljósmæðrafélagss Íslands, Félags íslenskra náttúrufræðinga, Stéttarfélags lögfræðinga hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu, Stéttarfélags háskólamanna á matvæla- og næringasviði, Dýralækningafélags Íslands hjá Matvælastofnun og Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins hjá Fjársýslu ríkisins. Þegar lög voru sett höfðu verkfallsaðgerðir staðið yfir í á þriðja mánuð.
BHM taldi lagasetninguna fela í sér ólögmætt inngrip í starfsemi frjálsra, löglegra félagssamtaka og fór með málið fyrir dómstóla. Um miðjan júlí var íslenska ríkið sýkanð af kröfum BHM og var það niðurstaða dómsins að ríkinu hafi verið heimilt að setja lög á verkfallið.
Þeirri niðurstöðu var áfrýjað til Hæstaréttar, sem staðfesti niðurstöðu héraðsdóms í dag.