Rikisstjórnin samþykkir að skoða stofnun hamfarasjóðs

17982668533_9515f12a3b_b.jpg
Auglýsing

Rík­is­stjórn Íslands hefur sam­þykkt að fela umhverf­is- og auð­linda­ráðu­neyt­inu að stýra starfs­hópi sem geri til­lögur um stofnun sér­staks ham­fara­sjóðs. Þetta er gert að til­lögu Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra. Málið var á dag­skrá rík­is­stjórn­ar­fundar í morg­un.

Í frétta­til­kynn­ingu segir að skoð­aður verði "fýsi­leiki þess að til verði slíkur sjóður og jafn­framt verði skoð­aður sam­runi og/eða sam­þætt­ing á starf­semi og verk­efnum Ofan­flóða­sjóðs ann­ars vegar og Bjarg­ráða­sjóðs hins vegar við hinn nýja sjóð".

Með þessum breyt­ingum á umgjörð og stjórn­sýsla um bóta­mál vegna nátt­úru­ham­fara að verða treyst. "Er þar horft til ham­fara sem geta haft alvar­legar afleið­ingar fyrir íslenskt sam­fé­lag og inn­viði þess. Lögð er áhersla á ljúka á þessu ári vinnu við mótun og gerð til­lagna um bóta- og tjóna­mál með stofnun nýs heild­stæðs sjóðs vegna nátt­úru­ham­fara eða sam­runa þeirra úrræða og sjóða sem nú þegar eru fyrir hendi hér á landi og taka á og koma að bóta- og tjóna­málum vegna nátt­úru­ham­fara.

Auglýsing

Jafn­framt verði gerðar til­lögur um tekju­for­sendur og fjár­mögnun slíks ham­fara­sjóðs með það að mark­miði að lang­tíma­á­ætlun ofan­flóða­varna hald­ist og öll umsýsla varð­andi bóta­mál og tjón verði öfl­ug, skil­virk­ari og hag­kvæm­ari en nú er, auk þess sem ferlar og reglur verði sam­ræmd­ar.

Jafn­framt var sam­þykkt að fela fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu að end­ur­skoða lög og reglu­verk Við­laga­trygg­ingar Íslands með það að mark­miði að verð­mæti og iðgjöld sem tengd eru opin­berum mann­virkjum og almennum hús­eignum falli sem best undir trygg­inga­vernd. Miðað er við að end­ur­skoðun lag­anna verði lokið og lögð fram grein­ar­gerð um breyt­ingar í rík­is­stjórn eigi síðar en 1. mars 2016."

Á rík­is­stjórn­ar­fundi í dag var einnig sam­þykkt að setja 1,5 milljón króna af ráð­stöf­un­arfé rík­is­stjórn­ar­innar til að styrkja sýn­ingar á ævin­týra­óp­er­unni Bald­urs­brá. Í til­kynn­ingu vegna þessa seg­ir: "Óperan er óður til íslenskrar nátt­úru og er sér­stak­lega ætluð börn­um. Í Óper­unni  má m.a. heyra íslensk þjóð­lög, rímna­lög, þulur og dansa.".

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None