Rússland hefur ekki lengur efni á að borga ríkisstarfsmönnum laun

putin_portrait.jpg
Auglýsing

Vla­dimir Putin hefur und­ir­ritað þrjár laga­breyt­ingar sem gera það meðal ann­ars að verkum að laun rík­is­starfs­manna verða lækkuð frá og með 1. maí næst­kom­andi. Putin og Dmitri Med­vedev for­sæt­is­ráð­herra ætla að leiða með for­dæmi og taka á sig tíu pró­sent launa­lækk­an­ir.

Til við­bótar ætla rúss­nesk stjórn­völd að fækka rík­is­starfs­mönnum um fimm til 20 pró­sent. Þetta kemur fram í frétt á Business Insider.

Seil­ast í vara­sjóði



Að­gerð­irnar eru hluti af víð­fermum neyð­ar­að­gerðum sem rúss­nesk stjórn­völd hafa gripið til vegna þess mikla tekju­sam­dráttar sem lækkun á heims­mark­aðs­verði á olíu hefur valdið land­inu. Hver tunna af olíu er nú að selj­ast á um 60 dali en fjár­lög rúss­neska rík­is­ins mið­uðu við að tunnan væri að selj­ast á um 100 dali. Þar sem olíu­út­flutn­ingur skiptir ríkið öllu máli er ljóst að risa­stórt gat er að mynd­ast í fjár­lögum árs­ins 2015.

Þessar fréttir ber­ast viku eftir að Anton Silu­anov, fjár­mála­ráð­herra Rúss­lands, bað rúss­neska þingið um að fá aðgang að um 34 millj­örðum punda, um 7.000 millj­örðum króna, sem geymdir eru í vara­sjóði sem Rúss­land á til að fár­magna áætlun sína sem á að vinna gegn kreppu­á­hrif­um. Upp­hæðin nemur um helm­ingi allra eigna sjóðs­ins.

Auglýsing

Him­inhá verð­bóla og sam­dráttur



Verð­bólga mæld­ist 16,7 pró­sent í Rúss­landi í síð­asta mán­uði og spár Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins gera ráð fyrir að efna­hagur lands­ins drag­ist saman um þrjú pró­sent á þessu ári og eitt pró­sent til við­bótar á því næsta.

Þessar spár gera hins vegar ráð fyrir því að ástandið í Úkra­ínu muni lag­ast á næstu miss­er­um. Það er alls ójóst að það ástand muni lagast og því enn tölu­verðar líkur á að sam­drátt­ur­inn í Rúss­landi verði meiri.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None