Rússnesk glæpagengi talin falsa merkingar á innfluttum laxi - Merkja hann sem íslenskan

lax
Auglýsing

Yfir­menn í rúss­nesku toll­gæsl­unni fund­uðu með kol­legum sínum hjá ­Evr­ópu­sam­band­inu í Brus­sel í gær. Fund­ur­inn vakti tölu­verða athygli, enda ­sam­skipti Rúss­lands og Evr­ópu­sam­bands­ins ekki upp á sitt besta sök­um við­skipta­þving­anna sem sam­bandið hefur beitt Rússa vegna ástands­ins í Úkra­ín­u frá því snemma árs 2014. Í frétt Reuters um fund­inn kemur hins vegar fram að á­stæða hans hafi verið sú að rúss­neska toll­gæslan hafi óskað eftir sam­vinn­u ­Evr­ópu­sam­bands­ins til að takast á við fals­aðar merk­ingar á mat­vöru sem flutt er inn til Rúss­lands og er sögð vera frá löndum utan Evr­ópu­sam­bands­ins. Þar á meðal er inn­fluttur lax sem hafi ver­ið ­merktur sem íslensk vara.

Í frétt Reuters um málið er haft eftir Yev­geny Nepoklonov, yfir­mann­i hjá rúss­nesku mat­væla­stofn­un­inni Rossel Rosselk­hozna­dzor, að rúss­nesk ­tolla­yf­ir­völd hafi hald­lagt stórar vöru­send­ingar af svína­kjöti sem fylgi­gögn ­sögðu að væru frá Svart­fjalla­landi, sem er ekki í Evr­ópu­sam­band­inu. Þá hafa þau einnig hald­lagt umtals­vert magn af laxi sem fylgi­gögn sögðu að væri frá Ísland­i. ­Nepol­klonov sagði að vöru­send­ing­arnar væri skipu­lagðar af glæpa­gengjum og að Rúss­ar vildu vinna með Evr­ópu­sam­band­inu til að koma í veg fyrir þennan ólög­lega inn­fluttn­ing.

Inn­fluttn­ings­bann á Ísland

Dmi­try Med­veded, for­sæt­is­ráð­herra Rússa, til­kynnti í ágúst að Ísland væri komið á lista yfir þau lönd sem nú er óheim­ilt að flytja inn mat­væli frá. Auk Íslands bætt­ust Alban­ía, Svart­fjalla­land, Liechten­stein og Úkra­ína á list­ann. Í til­kynn­ingu frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu í kjöl­far ákvörð­un­ar­innar sagði: "Ljóst er að bannið felur í sér að íslenskum fyr­ir­tækjum verður ekki lengur unnt að mark­aðs­setja sjáv­ar­af­urðir í Rúss­landi auk þess sem bannið tekur til land­bún­að­ar­vara að frá­töldu lamba­kjöti, ærkjöti, hrossa­kjöti og nið­ur­soðnu fisk­meti í dósum". Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu má ekki flytja inn íslenskan lax til Rúss­lands sam­kvæmt inn­flutn­ings­bann­inu. Því er óljóst hvaða til­gangi það eigi að þjóna að segja lax­inn með röngu merk­ing­unum vera frá Íslandi.

Auglýsing

Inn­flutn­ings­bann Rússa er við­bragð þeirra við við­skipta­þving­unum Evr­ópu­sam­bands­ins, Banda­ríkj­anna og Kanada sem þeir búa við vegna inn­limunar þeirra á Krím­skaga. Ísland er á meðal þeirra landa sem stutt hafa við­skipta­þving­an­irn­ar. Rúss­land er stórt við­skipta­land Íslands og stærsti kaup­andi upp­sjáv­ar­afla, einkum mak­ríls. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None