Ríkisútvarpið (RÚV) hefur selt byggingarrét á lóð sinni við Efstaleiti 1. Áætlaður söluhagnaður er 1,5 milljarður króna. Kaupandi er einkahlutafélag með ábyrgð Skuggabyggðar ehf. Ávinningur RÚV af sölunni verður notaður til að greiða niður skuldir. Þrátt fyrir söluna og ráðstöfunar söluandvirðisins til skuldaniðugreiðslna veður RÚV hins vegar enn yfirskuldsett. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá RÚV.
Í tilkynningunni segir að til standi að byggja upp blandaða byggð á svæðinu. "Kaupendur skiluðu inn tilboði sem stjórn RÚV mat það hagstæðasta í söluferlinu. Í kjölfar þess voru hafnar viðræður sem lýkur nú með samþykkt stjórnar RÚV á samningnum og undirritun hans. Kaupsamningurinn um byggingarréttinn er gerður með fyrirvara um frágang fjármögnunar kaupanna, nánari útfærslu á tilteknum þáttum í skipulagi svæðisins og að ráðstöfunarheimild Ríkisútvarpsins yfir lóðarréttindunum verði staðfest með ákvæði í fjáraukalögum fyrir árið 2015."
Ávinningur sölunnar verður nýttur til að greiða niður skuldir RÚV. Í tilkynningunni segir að á síðastliðnu ári hafi staðið yfir fjárhagsleg endurskipulagning á starfsemi fyrirtækisins og að skuldaniðurgreiðslan sé liður í henni. "Fyrr í haust var birt árshlutauppgjör sem staðfesti jákvæðan viðsnúning í rekstri félagsins og að hagræðingaraðgerðir síðasta árs hafa skilað sér. Afkoma síðustu tólf mánaða samanborið við afkomu síðasta rekstrarársfélagsins frá 1. september 2013 til 31. ágúst 2014 staðfestir enn frekar þann viðsnúning sem orðið hefur. Á framangreindu tímabili skilaði félagið hagnaði upp á 30,5 milljónir króna en tap síðasta rekstrarárs þá á undan (2013-2014) var 271 milljón eftir skatta. Rekstrarkostnaður lækkar um 4,3% að raunvirði milli rekstrarára þrátt fyrir að kostnaður við dreifingu hækki á grundvelli samnings sem gerður var að vori 2013. Þrátt fyrir þennan góða rekstrarárangur er ljóst að félagið er yfirskuldsett, aðallega vegna uppgjörs gamalla lífeyrissjóðsskuldbindinga. Í lok síðasta rekstrarárs var eiginfjárhlutfall félagsins jafnframt komið niður í 5,5% og geta til að standa við greiðslur afborgana og vaxta af lánum var ekki til staðar."
Þrátt fyrir þennan viðsnúning í rekstri og áform um að nota söluandvirði byggingarréttar á lóð RÚV til að greiða niður skuldir er fyrirtækið hins vega enn yfirskuldsett. Í tilkynningunni segir að þar beri hæst að nefna skuldabréf í eigu Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR) sem sé tilkomið vegna uppgjörs gamalla lífeyrisskuldbindinga RÚV. Þegarhefur náðst samkomulag við LSR um að fresta greiðslum þriggja gjalddaga bréfsins til 1. apríl 2016. "Núverandi stjórn RÚV, eins og margar fyrri stjórnir RÚV, hefur vakið athygli eigandans, ríkisins, á yfirskuldsetningu félagsins og óskað eftir því að kannaðar verði leiðir til að bæta efnahag félagsins."
Kjarninn fjallaði ítarlega um fjármál RÚV í fréttaskýringu í byrjun árs 2015.