Sá hluti Reykjavíkurborgar sem rekinn er fyrir skattfé tapaði 11,1 milljarði á níu mánuðum

Vaxtakostnaður samstæðu Reykjavíkurborgar var 12,1 milljarði króna hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir á fyrstu níu mánuðum ársins. Samstæðan skilar hagnaði, en einungis vegna þess að matsvirði félagslegs húsnæðis hækkaði um 20,5 milljarða króna.

Dagur B. Eggertsson er sem stendur borgarstjóri í Reykjavík. Einar Þorsteinsson mun taka við því embætti síðar á kjörtímabilinu.
Dagur B. Eggertsson er sem stendur borgarstjóri í Reykjavík. Einar Þorsteinsson mun taka við því embætti síðar á kjörtímabilinu.
Auglýsing

Sá hluti rekst­urs Reykja­vík­ur­borgar sem fjár­­­­­­­magn­aður er með skatt­­­­tekj­um, svo­­­­kall­aður A-hluti, var nei­kvæður um 11,1 millj­arð króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2022. Fjár­hags­á­ætlun vegna árs­ins hafði gert ráð fyrir að rekstr­ar­nið­ur­staðan yrði nei­kvæð um 1,6 millj­arða króna og því er nið­ur­staða um 9,5 millj­örðum krónum verri en stefnt var að. 

Þetta kemur fram í nýbirtu upp­gjöri Reykja­vík­ur­borgar vegna fyrstu níu mán­aða árs­ins. Þar segir að verð­bólga hafi verið 7,8 pró­sent á tíma­bil­inu sem hafi gert það að verkum að fjár­magns­gjöld hafi verið miklu hærri en áætlað var. Þannig hafi A-hluti borg­ar­innar greitt um fimm millj­arða króna meira í vexti á fyrstu þremur árs­fjórð­ungum árs­ins 2022 en reiknað hafi verið með. Á sama tíma voru tekjur 344 millj­ónum krónum undir áætlun og rekstr­ar­út­gjöld, meðal ann­ars laun, 4,4 millj­örðum króna yfir þeim.  

Mats­breyt­ing á félags­legu hús­næði upp um 20 millj­arða

Hinn hlut­inn í rekstri borg­­­­ar­inn­­­­ar, B-hlut­inn, nær yfir afkomu þeirra fyr­ir­tækja sem borgin á að öllu leyti eða að hluta. Fyr­ir­tækin sem telj­­­­­ast til B-hlut­ans eru Orku­veita Reykja­vík­­­­­­­­­ur, Faxa­fló­a­hafnir sf., Félags­­­­­­­­­bú­­­­­staðir hf., Íþrótta- og sýn­inga­höllin hf., Mal­bik­un­­­­­ar­­­­­stöðin Höfði hf., Slökkvi­lið höf­uð­­­­­borg­­­­­ar­­­­­­svæð­is­ins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Afl­vaka hf. og Þjóð­­­­ar­­­­leik­vangs ehf.

Auglýsing
Hann er jákvæður um 17,9 millj­arða króna. Þar skiptir mestu Stærsta ástæða þess að virði eigna Félags­­­bú­­staða, félags utan um félags­­­legar leig­u­í­­búðir í eigu Reykja­vík­­­ur, hækk­­aði 16 millj­­arðar króna umfram áætl­­un, eða alls um 20,5 millj­arða króna. Hækk­­unin end­­ur­­speglar hækkun á fast­­eigna­mati, en alls eiga Félags­bú­staðir 3.049 íbúð­ir. Eignir félags­ins voru metnar á 146,7 millj­­arða króna um mitt þetta ár.

Þessi mats­breyt­ing, sem ekki er hægt að leysa út nema með því að selja íbúðir Félags­bú­staða, gerir það því að verkum að sam­stæða Reykja­vík­ur, bæði A- og B-hlut­inn, skil­aði 6,8 millj­arða króna hagn­aði á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Það er 758 millj­ónum krónum meira en áætl­anir höfðu gert ráð fyr­ir. 

Hin mikla verð­bólga hefur gert það að verkum að fjár­magns­gjöld sam­stæð­unnar voru 12,1 millj­arði króna hærri en áætlað var.

Segja verð­bólgu og hærri stýri­vexti hafa áhrif

Í til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg vegna upp­gjörs­ins segir að ýmis­legt hafi sett svip sinn á það. „Bylgja nýs afbrigðis af COVID-19 í upp­hafi árs fól í sér tíma­bundið álag á rekst­ur, einkum á sviðum skóla og vel­ferð­ar. Stríð í Úkra­ínu, auk kór­ónu­veirunn­ar, hefur leitt til skorts á hrá­vöru og hægt á fram­leiðslu­línum með miklum áhrifum á heims­markað og auk­inni verð­bólgu í okkar helstu við­skipta­lönd­um. Þá hefur Seðla­bank­inn, vegna hækk­ana á hús­næð­is­mark­aði, hárrar verð­bólgu og þenslu inn­an­lands, verið í hækk­un­ar­ferli stýri­vaxta og allt hefur þetta áhrif.“

Reykja­vík­ur­borg seg­ist hafa brugð­ist við erf­iðri stöðu með sam­drætti í fjár­fest­ingum en gert er ráð fyrir að þær verði 25 millj­arðar króna í stað fyr­ir­hug­aðra 32,4 millj­arða króna, í árs­lok. „Ný fjár­hags­á­ætlun fyrir árið 2023- 2027 gerir jafn­framt ráð fyrir sam­drætti í fjár­fest­ingum miðað við fyrri áætl­anir ásamt hag­ræð­ing­ar­að­gerð­um. Þá hefur fjár­mála­stefna borg­ar­innar verið end­ur­skoðuð með hlið­sjón af fjár­hags­legri stöðu og efna­hags­legu ytra umhverfi sam­hliða fram­lagn­ingu fjár­hags­á­ætl­unar 2023- 2027.“

Skulda­við­mið tekin úr sam­bandi til 2025

Sam­­kvæmt sveit­­ar­­stjórn­­­ar­lögum ber sveit­­ar­­stjórn að sjá til þess að rekstri, fjár­­­fest­ingum og ráð­­stöfun eigna og sjóða sé þannig hagað á hverjum tíma að sveit­­ar­­fé­lagið muni til fram­­tíðar geta sinnt skyld­u­bundnum verk­efnum sín­­um. 

Til að full­nægja þess­­ari skyldu er sveit­­ar­­fé­lögum gert að fylgja ákveðnum fjár­­­mála­regl­­um. Þær fela í fyrsta lagi í sér svo­­kallað jafn­­væg­is­við­mið, sem segir að sam­an­lögð heild­­ar­út­­­gjöld sam­­stæðu til rekstrar á hverju þriggja ára tíma­bili megi ekki verða hærri en nemur sam­an­lögðum reglu­­legum tekj­­um. Í öðrum lagi er svo­­kallað skulda­við­mið, sem í felst að heild­­ar­skuldir og skuld­bind­ingar sam­­stæðu séu ekki hærri en 150 pró­­sent af reglu­­legum tekj­­um.

Síð­ara við­miðið var hækkað tíma­bundið upp í 200 pró­­sent með lögum sem Alþingi setti árið 2020 til að mæta efna­hags­­legum áhrifum heims­far­ald­­urs kór­ón­u­veiru. Sú heim­ild er sem stendur í gildi til loka árs 2025. Skulda­við­mið sam­stæðu Reykja­vík­ur­borgar án Orku­veitu Reykja­víkur var komið upp í 93 pró­sent um síð­ustu ára­mót. Síðan þá hafa skuld­irnar auk­ist umtals­vert. Skulda­við­miðið var 73 pró­sent árið 2018. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent