Sæstrengurinn ræddur í þaula - Afstaða Breta „mun ekkert breytast“

ABH8774-1.jpg
Auglýsing

„Eftir tvær vikur eru þing­kosn­ingar í Bret­landi, og eitt sem ég get lofað ykkur er að afstaða Breta til þessa verk­efnis mun ekk­ert breytast, hvernig sem þær fara,“ sagði Charles Hendry, fyrr­ver­andi ráð­herra orku- og lofts­lags­mála Bret­landi, á opnum fundi um lagn­ingu raf­orku­sæ­strengs milli Bret­lands og Íslands, sem fram fór í morg­un.

Kjarn­inn, í sam­starfi við Íslensk verð­bréf, stóð fyrir fund­inum en hann fór fram á Hótel Sögu í morg­un.

Frum­mæl­endur voru Sig­þór Jóns­son, fram­kvæmda­stjóri Íslenskra verð­bréfa, og fyrr­nefndur Charles Hendry. Þátt­tak­endur í pall­boði að loknum erindum þeirra voru Ragna Árna­dótt­ir, aðstoð­ar­for­stjóri Lands­virkj­un­ar, og Gunnar Bald­vins­son, for­maður Lands­sam­taka líf­eyr­is­sjóða.

Auglýsing

Sig­þór fór í erindi sínu yfir sæstrengs­verk­efn­ið, sögu­legan bak­grunn þess, við­skipta­for­sendur og mögu­lega fjár­mögn­un­ar­að­ferð, en hann rann­sak­aði verk­efnið ítar­lega í loka­verk­efni sínu í fram­halds­námi við Háskóla Íslands.

Sig­þór sagði, að virði orku­auð­linda þjóð­ar­innar hefði marg­fald­ast á skömmum tíma, og það væri brýnt hags­muna­mál fyrir þjóð­ina og almenn­ing að skoða lagn­ingu sæstrengs til Bret­lands gaum­gæfi­lega. Álita­málin væru fjöl­mörg, en það væri óum­deilt í dag að verk­efnið væri vel raun­hæft og allt benti til að það væri mjög arð­bært. Verðið sem hægt væri að fá fyrir hvert mega­vatt af raf­orku væri marg­falt hærra en feng­ist fyrir verðið til stór­iðj­unnar hér á landi í dag, og því ætti að skoða verk­efnið með opnum huga.

Charles Hendry, sem var orku­mála­ráð­herra Breta þegar vilja­yf­ir­lýs­ing var und­ir­rituð ásamt stjórn­völdum hér á landi fyrir þremur árum og starfar nú sem ráð­gjafi þar sem meðal ann­ars er horft til þess að leggja sæstreng milli Íslands og Bret­lands, sagði sæstreng milli Íslands og Bret­lands geta falið í sér í mikil tæki­færi, fyrir Ísland og Bret­land. Margt benti til þess að sæstreng­ur­inn til Íslands væri fýsi­legri kostur en margir aðrir mögu­leikar í þessum efn­um, sem Bretar væru nú með á teikni­borð­inu.

Þá fór hann enn fremur ítar­lega fyrir þær áskor­anir sem Bretar standa frammi fyrir í orku­mál­um, ekki síst til þess að geta náð mark­miðum um að auka vægi umhverf­is­vænna orku­gjafa og tryggja betur orku­ör­yggi lands­ins á næstu árum. Þær áskor­anir væru risa­vaxn­ar, í öllu sam­hengi, og áhugi Breta á teng­ingnum með sæstrengjum væri haf­inn yfir allt póli­tísk dæg­ur­þras, þar sem allir flokkar hefði sam­mælst um mik­il­vægi máls­ins.

Nán­ari umfjöllun um efni fund­ar­ins, og þær upp­lýs­ingar sem fram komu á hon­um, mun birt­ast á vef Kjarn­ans á næst­unni, og frek­ari fund­ar­höld  um þetta mál­efni, þar sem fjallað verður um aðrar hliðar þessa umfangs­mikla verk­efn­is­ins en þær sem í dag voru til umfjöll­un­ar, eru fyr­ir­hug­uð.

 

Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri var fundarstjóri. Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri var fund­ar­stjóri. Mynd: Ant­on.

Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður atvinnuveganefndar Alþingis, fylgdist með fundinum. Heiðrún Jónsdóttir, stjórnarformaður Íslenskra verðbréfa, sést einnig fylgjast með. Mynd: Anton. Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­maður atvinnu­vega­nefndar Alþing­is, fylgd­ist með fund­in­um. Mynd: Ant­on.

Vel var mætt á fundinn, sem var opinn öllum. Hann fór fram á Hótel Sögu. Mynd: Anton. Vel var mætt á fund­inn, sem var opinn öll­um. Hann fór fram á Hótel Sögu. Mynd: Ant­on.

Erindi Sigþórs Jónssonar og Charles Hendry, voru ítarleg og fjölluðu um bakgrunn verkefnisins og viðskiptalegar forsendur þess. Mynd:  Anton. Erindi Sig­þórs Jóns­sonar og Charles Hendry, voru ítar­leg og fjöll­uðu um bak­grunn verk­efn­is­ins og við­skipta­legar for­sendur þess. Mynd: Ant­on.

Ragna Árnadóttir og Gunnar Baldvinsson  tóku þátt í pallborðsumræðum, og lýstu bæði yfir áhuga sínum á verkefninu. Mynd: Anton. Ragna Árna­dóttir og Gunnar Bald­vins­son tóku þátt í pall­borðsum­ræð­um, og lýstu bæði yfir áhuga sínum á verk­efn­inu. Mynd: Ant­on.

Sigþór Jónsson, framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa, var þátttakandi pallborðsumræðum, sem Þórunn Elísabet Bogadóttir, aðstoðarritstjóri Kjarnans, stýrði. Mynd: Anton. Sig­þór Jóns­son, fram­kvæmda­stjóri Íslenskra verð­bréfa, var þátt­tak­andi í pall­borðsum­ræð­um, sem Þór­unn Elísa­bet Boga­dótt­ir, aðstoð­ar­rit­stjóri Kjarn­ans, stýrði. Mynd: Ant­on.

Sigþór Jónsson, Charles Hendry og Ragna Árnadóttir. Mynd: Anton. Sig­þór Jóns­son, Charles Hendry og Ragna Árna­dótt­ir. Mynd: Ant­on.

 

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None