Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (FÍH) lýsir yfir vonbrigðum sínum með ákvörðun alþingis að stöðva verkfall hjúkrunarfræðinga með lagasetningu. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá félaginu sem send var fjölmiðlum nú undir kvöld. Alþingi samþykkti í kvöld lagafrumvarp sem frestar verkfallsaðgerðum hjúkrunarfræðinga og einstakra aðildarfélaga BHM.
Í tilkynningunni frá FÍH segir:
„Með lagasetningunni er virtur að vettugi lýðræðislegur og sjálfsagður samningsrétt hjúkrunarfræðinga í löglegri baráttu fyrir nauðsynlegri og löngu tímabærri launaleiðréttingu.
Launakröfur hjúkrunarfræðinga eru hógværar og miðast við að dagvinnulaun þeirra séu samanburðarhæf við daglaun annarra háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna og útrýmt verði þeim kynbundna launamuni sem hjúkrunarfræðingar búa við. Breytt launakjör hjúkrunarfræðinga eru forsenda þess að hér sé hægt að reka skilvirkt heilbrigðiskerfi með nauðsynlegri aðkomu hjúkrunarfræðinga.
Lagasetningin markar kaflaskil í launabaráttu sem hefur einkennst að litlum samningsvilja samninganefndar ríkisins. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga áréttar að nýsamþykkt lög sem binda enda á verkfall hjúkrunarfræðinga er frestun á viðvarandi vandamáli en ekki sú lausn til frambúðar sem hjúkrunarfræðingar leituðu eftir.“