Sameiginleg bílastæðahús fremur en bílakjallarar í Keldnalandinu

Horft verður til þess að byggja nokkur bílastæðahús fremur en bílastæðakjallara í hverfinu sem á að skipuleggja að Keldum og í Keldnaholti, til að spara bæði peninga og tíma.

Keldnalandið verður skipulagt undir blandaða byggð á næstu árum.
Keldnalandið verður skipulagt undir blandaða byggð á næstu árum.
Auglýsing

Stefnt er að því að í nýju hverfi sem skipu­lagt verður á Keldum og Keldna­holti verði byggð nokkur bíla­stæða­hús á lyk­il­stöð­um, sem komi að mestu í stað bíla­kjall­ara og einka­bíla­stæða inni á lóðum í hverf­inu. Þetta kemur fram á nýjum upp­lýs­inga­vef sem Reykja­vík­ur­borg hefur sett upp vegna fyr­ir­hug­aðrar upp­bygg­ingar Keldna­lands­ins.

Þar segir að horft sé til bíla­stæða­hús­anna til þess að draga úr bygg­ing­ar­kostn­aði og stytta fram­kvæmda­tíma hús­bygg­inga, auk þess sem með þessu sé dregið úr áhrifum á grunn­vatn. „Horfa á til þess að húsin geti hýst mið­læga þjón­ustu fyrir aðliggj­andi svæði til á jarð­hæð og að hægt verði að breyta þeim í atvinnu- eða íbúð­ar­hús­næði ef bíla­stæða­þörf minnkar í fram­tíð­inn­i,“ segir í umfjöllun á vef borg­ar­inn­ar.

Þetta eru svip­aðar áherslur og settar hafa verið fram í skipu­lagi Nýja-Skerja­fjarð­ar, þar sem horft er til þess að stórt mið­lægt bíla­stæða­hús leysi bíla­geymslu­þörf íbúa.

Í afar mörgum nýbygg­ingum sem byggðar hafa verið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á und­an­förnum árum og ára­tugum eru bíla­kjall­arar undir hús­um, sem eykur bæði bygg­ing­ar­kostnað (talan 6-10 millj­ónir á hvert stæði hefur verið nefnd) og bygg­ing­ar­tíma hús­næð­is.

Skipu­lags­sam­keppni á næsta ári

Reykja­vík­ur­borg og Betri sam­göngur vinna saman að upp­bygg­ingu Keldna­lands­ins og Keldna­holts, en búið er ákveða að efna til alþjóð­legrar sam­keppni um nýtt ramma­skipu­lag fyrir svæð­ið, sem á að fara af stað á fyrri hluta næsta árs. Sam­kvæmt því sem kemur fram á vef borg­ar­innar er stefnt að því að hægt verði að þróa deiliskipu­lag fyrir fyrstu upp­bygg­ing­ar­reit­ina á svæð­inu haustið 2023.

Auglýsing

Á vef borg­ar­innar segir að stefnt sé að því að þjón­usta Borg­ar­línu hefj­ist sam­hliða afhend­ingu á fyrstu 100 íbúð­unum í hverf­inu, og Borg­ar­lína er sögð ein helsta for­senda þess að hægt sé að „um­breyta Keldum í bland­aða byggð með íbúð­um, þjón­ustu og atvinnu­hús­næð­i“.

Svæðið sem um ræðir er alls um 115 hekt­ar­ar, og á vef borg­ar­innar má sjá skýr­ing­ar­mynd­ina sem er hér að neð­an, þar sem sá flötur er lagður yfir önnur svæði í Reykja­vík.

Mynd: Reykjavíkurborg

Umhverf­is­gæði svæð­is­ins verði nýtt

Í umfjöllun á vef Reykja­vík­ur­borgar segir að Keldur séu fal­legt og grænt svæði og að áhersla verði lögð á að nýta og taka mið af nátt­úru­gæðum svæð­is­ins. við upp­bygg­ingu hverf­is­ins. „Þarna gefst tæki­færi við upp­bygg­ingu til að nýta ræktun sem er fyrir á svæð­inu og flétta inn í borg­ar­um­hverfið svo úr verði grænir borg­ar­garð­ar. Hverfið verður byggt upp í suð­ur­hlíðum borg­ar­innar og liggur því vel við sól­u,“ segir á vef borg­ar­inn­ar.

Keldnaholt. Mynd: Reykjavíkurborg

Einnig kemur þar fram að auk góðra almenn­ings­sam­gangna verði lögð áhersla á fram­úr­skar­andi göngu- og hjóla­leiðir og að skipu­lag verði á for­sendum vist­vænna og hag­kvæmra sam­gangna.

„Út­gangs­punkt­ur­inn er að upp­bygg­ing svæð­is­ins hafi sem minnst ytri áhrif til aukn­ingar í bíla­um­ferð á aðliggj­andi stofn- og tengi­brautum og að almenn­ings­sam­göngur verði fyrsti kostur í lengri ferð­u­m,“ segir á vef borg­ar­inn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent