Samfylkingin mælist með yfir 20 prósent fylgi og hefur ekki mælst stærri í áratug

Fylgi Samfylkingarinnar hefur rúmlega tvöfaldast frá því að kosið var síðasta fyrir rúmu ári síðan. Flokkurinn mælist nú með 21,1 prósent fylgi hjá Gallup. Framsókn hefur ekki mælst minni á kjörtímabilinu og Vinstri græn eru í miklum öldudal.

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar.
Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar.
Auglýsing

Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar mælist nú 21,1 pró­sent sam­kvæmt nýjum Þjóð­ar­púlsi Gallup. Það eykst 4,5 pró­sentu­stig milli mán­aða og hefur rúm­lega tvö­fald­ast frá síð­ustu kosn­ing­um, en þá fékk flokk­ur­inn 9,9 pró­sent atkvæða. Þetta er í fyrsta sinn sem fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar mælist yfir 20 pró­sent í könnun Gallup frá því í lok árs 2014, þegar flokk­ur­inn sat síð­ast í rík­is­stjórn og mesta fylgi sem hann hefur mælst með í rúm­lega tíu ár, eða frá því í októ­ber 2012. Þá sat Sam­fylk­ingin í rík­is­stjórn með Vinstri grænum og var undir for­mennsku Jóhönnu Sig­urð­ar­dótt­ur. 

Þetta er þriðja könn­unin á skömmum tíma sem sýnir mikla fylg­is­aukn­ingu Sam­fylk­ing­ar­inn­ar. Í nóv­em­ber birt­ust kann­anir frá bæði Mask­ínu og Pró­sent sem sýndu svip­aða stöðu. Hvorug þeirra sýndi fylgið þó yfir 20 pró­sent­un­um. 

Helsta breyt­ingin sem orðið hefur á högum Sam­­fylk­ing­­ar­innar á allra síð­ustu vikum er kosn­­ing Kristrúnar Frosta­dóttur sem for­­manns flokks­ins, en það gerð­ist 28. októ­ber síð­­ast­lið­inn. 

Fram­sókn ekki minni á kjör­tíma­bil­inu

Á sama tíma mælist fylgi Vinstri grænna nálægt því minnsta sem flokk­ur­inn hefur nokkru sinni mælst með hjá Gallup, eða 7,5 pró­sent. Minnsta fylgið mæld­ist í sum­ar, en það var 7,2 pró­sent. 

Auglýsing
Sjálfstæðisflokkurinn er áfram sem áður stærsti flokkur lands­ins og mælist með 24,1 pró­sent fylgi. Það er aðeins minna en í síð­asta mán­uði og rétt undir kjör­fylgi, sem var 24,4 pró­sent. 

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist nú með 12,2 pró­sent fylgi sem er minnsta fylgi sem hann hefur mælst með á kjör­tíma­bil­in­u. 

Sam­an­lagt fylgi rík­­is­­stjórn­­­ar­­flokk­anna þriggja mælist nú 43,5 pró­­sent. Það fylgi myndi ekki duga fyrir meiri­hluta á þingi. Flokk­­arnir þrír fengu 54,4 pró­­sent atkvæða í kosn­­ing­unum 2021 og því hafa þeir tapað 10,9 pró­­sent­u­­stigum af fylgi á fyrsta ári kjör­­tíma­bils­ins. Það er minna en allt það fylgi sem Sam­fylk­ingin hefur bætt við sig á því rúma ári sem liðið er frá síð­ustu kosn­ing­um, en það er 11,2 pró­sent.

Flokkur fólks­ins ekki inni

Píratar mæl­ast jafn stórir og Fram­sókn­ar­flokkur með 12,2 pró­sent og hafa bætt við sig 3,6 pró­sentu­stigum á kjör­tíma­bil­inu. Við­reisn mælist tæpu pró­sentu­stigi undir kjör­fylgi með 7,4 pró­senta fylgi.

Þrír minnstu flokk­arnir sem mæl­ast með fylgi eru Mið­flokk­ur­inn með 5,6 pró­sent, Sós­í­alista­flokk­ur­inn með 5,2 pró­sent og Flokkur fólks­ins með 4,5 pró­sent. Sá síð­ast­nefndi hefur tapað miklu á kjör­tíma­bil­inu og næði varla inn með það fylgi sem hann mælist með nú.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent