Þorsteinn R. Hermannsson, sem hefur verið samgöngustjóri Reykjavíkurborgar frá árinu 2016, hefur verið ráðinn forstöðumaður samgangna hjá Betri samgöngum ohf. til eins árs frá 1. september. Hann fer í leyfi frá starfi sínu hjá borginni á meðan.
Samkvæmt fréttatilkynningu frá Betri samgöngum verður hlutverk Þorsteins að vera opinbera hlutafélaginu til ráðgjafar um samgöngumál, vinna að undirbúningi verkefna Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og fylgja því eftir að markmið hans um greiðari samgöngur, fjölbreytta ferðamáta og aukið umferðaröryggi náist, í samstarfi við Vegagerðina og sveitarfélögin.
Samgöngusáttmálinn var undirritaður af ríkinu og sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu árið 2019 og er Betri samgöngum ætlað að hrinda honum í framkvæmd á næstu 13 árum, með 120 milljarða króna fjárfestingu í öllum ferðamátum.
Þorsteinn lauk meistaragráðu í byggingarverkfræði með sérhæfingu í samgönguverkfræði frá University of Washington í Seattle árið 2005 og hafði áður lokið B.Sc. gráðu í umhverfis- og byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands.
Eftir útskrift starfaði hann hjá Mannviti og forverum þess sem sviðsstjóri umferðar- og skipulagssviðs og fagstjóri samgangna. Einnig var hann verkfræðingur samgönguáætlunar í samgöngu- og sveitarstjórnaráðuneytinu frá 2010 til 2012.
Davíð Þorláksson, framkvæmdastjóri Betri samgangna, segir í fréttatilkynningu að það sé mikill fengur fyrir félagið að fá Þorstein til starfa.
„Hann hefur verið einn fremsti samgönguverkfræðingur landsins um árabil. Þorsteinn mun verða lykilmaður í uppbyggingu okkar nýja fyrirtækis, sem mun stýra stærstu fjárfestingu í samgönguinnviðum sem um getur á Íslandi,“ er haft eftir Davíð, í tilkynningunni.