Samkeppniseftirlitið mun leggja áherslu á að hraða rannsókn sinni á meintum samkeppnislagabrotum Mjólkursamsölunnar (MS) sem áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur lagt fyrir eftirlitið að framkvæma. Þetta segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, í svari við fyrirspurn Kjarnans um málið.
„Fyrirfram er ekki hægt að fullyrða hvenær henni [rannsókninni] lýkur, enda geta ýmis atvik hafa ágrif á meðferð málsins, þar á meðal umfang og eðli þeirra upplýsinga sem aflað verður og viðbrögð aðila,“ segir Páll Gunnar enn fremur.
Engin efnisleg afstaða
Samkeppniseftirlitið sektaði MS um 370 milljónir króna í september vegna misnotkunar fyrirtækisins á markaðsráðandi stöðu þess og þar af leiðandi fyrir brot á samkeppnislögum. Málið snérist um að MS hefði selt samkeppnisaðilum Kú, sem eru tengdir MS, hrámjólk á 17 prósent lægra verði en því sem Kú bauðst.
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála komst að þeirri niðurstöðu í vikunni að fella yrði fyrri úrskurð Samkeppniseftirlitsins úr gildi þar sem MS lét undir höfuð leggjast að upplýsa eftirlitið um samning milli MS og Kaupfélags Skagfirðinga (KS), sem á hlut í MS og er einn þeirra aðila sem fékk hrámjólk á lægra verði.
Áfrýjunarnefndin tók enga efnislega afstöðu til málsins heldur taldi að ekki hefði komið fram fullnægandi skýringar af hálfu MS á framkvæmd samningsins fyrir nefndinni. Þess vegna ætti Samkeppniseftirlitið að rannsaka málið aftur, með hliðsjón af umræddum samningi, og komast að nýrri niðurstöðu um hvort MS hefði brotið samkeppnislög.
Félag atvinnurekenda þrýstir á flýtimeðferð
Í frétt á vef Félags atvinnurekenda í gær var þrýst á að málið fái flýtimeðferð. Þar var haft eftir Ólafi Stephensen, framkvæmdastjóra félagsins, að það orki mjög tvímælis að öflug, markaðsráðandi fyrirtæki komist upp með að tefja málsmeðferðina með því að leyna fyrir Samkeppniseftirlitinu gögnum sem síðan séu dregin upp við málsmeðferðina hjá áfrýjunarnefnd.
Ólafur Stephensen, framkvæmdarstjóri Félags atvinnurekenda.
Það sé lykilatriði fyrir smærri keppinauta Mjólkursamsölunnar að hin nýja rannsókn fari ekki í hefðbundinn margra mánaða farveg hjá Samkeppniseftirlitinu heldur fái málið flýtimeðferð þannig að endanleg niðurstaða liggi fyrir sem fyrst. „Það er sömuleiðis brýnt hagsmunamál fyrir neytendur, sérstaklega í ljósi þess að meint brot MS hafa verið á fleiri sviðum. Hjá Samkeppniseftirlitinu er til meðferðar sambærileg kvörtun frá Kú vegna sölu á rjóma og brýnt að niðurstaða í því máli fáist sem fyrst,“ sagði Ólafur.