Samsetning tekna landsmanna breyttist talsvert árið 2020 miðað við fyrra ár

Kórónuveirufaraldurinn leiddi til þess að hlutfall tekna annarra en atvinnu- og fjármagnstekna af heildartekjum jókst mikið milli ára, summa tekna vegna atvinnuleysisbóta jókst til dæmis um 240 prósent. Hæstar tekjur hefur fólk á aldrinum 45 til 49 ára.

Meðaltal árstekna hér á landi er um 7,1 milljón en miðgildi árstekna er um 5,9 milljónir.
Meðaltal árstekna hér á landi er um 7,1 milljón en miðgildi árstekna er um 5,9 milljónir.
Auglýsing

Nokkur breyt­ing varð á sam­setn­ingu tekna ein­stak­linga á Íslandi á árinu 2020 miðað við árið á und­an. Aðrar tekjur en atvinnu­tekjur og fjár­magnstekjur sóttu veru­lega í sig veðrið á árinu en hlut­fall ann­arra tekna í heild­ar­tekjum lands­manna fór úr 20,6 pró­sentum upp í 24,7 pró­sent, sam­kvæmt nýjum tölum frá Hag­stofu Íslands. Það er um fimmt­ungs­hækk­un. Til ann­arra tekna telj­ast meðal ann­ars atvinnu­leys­is­bæt­ur, félags­leg aðstoð og líf­eyr­is- og bóta­greiðsl­ur. Hlut­fall atvinnu­tekna nam 68,5 pró­sentum og hlut­fall fjár­magnstekna nam 6,8 pró­sent­um. Til atvinnu­tekna telj­ast launa­tekjur og aðrar starfstengdar tekj­ur, til dæmis öku­tækja­styrk­ur, dag­pen­ing­ar, hlunn­indi og reiknað end­ur­gjald. Til fjár­magnstekna telj­ast til að mynda vaxta­tekj­ur, arð­ur, sölu­hagn­aður og leigu­tekjur utan rekstr­ar.

Samsetning heildartekna á árinu 2020. Mynd: Hagstofa Íslands

Þessi aukn­ing á öðrum greiðslum má meðal ann­ars rekja til kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins en í til­kynn­ingu á vef Hag­stof­unnar segir að summa tekna vegna atvinnu­leys­is­bóta jókst um 240 pró­sent milli ára og félags­leg aðstoð um 31 pró­sent á verð­lagi árs­ins 2020. Þá var á síð­asta ári greiddur út sér­stakur barna­bóta­auki til þeirra sem telj­ast fram­fær­endur barna auk þess sem sér­stök heim­ild var veitt til úttektar á sér­eign­ar­sparn­aði. Þær greiðslur telj­ast til ann­arra tekna.

Auglýsing

Mikil aukn­ing varð á atvinnu­leysi snemma strax snemma í kór­ónu­veiru­far­aldr­in­um. Í mars í fyrra var almennt atvinnu­leysi 5,7 pró­sent og sam­tals 9,2 pró­sent, það er sé tekið til­lit til þeirra sem voru í minnk­uðu starfs­hlut­falli. Til sam­an­burðar var atvinnu­leysi 5 pró­sent í mán­uð­inum á und­an. Hæst fór atvinnu­leysið í apríl þegar það var sam­tals 17,8 pró­sent að teknu til­liti til þeirra sem voru í minnk­uðu starfs­hlut­falli. Í þeim mán­uði var almennt atvinnu­leysi 7,5 pró­sent. Almenna atvinnu­leysið fór svo stíg­andi þegar leið á árið og í des­em­ber var almennt atvinnu­leysi 10,7 pró­sent en sam­tals 12,1 pró­sent.

Heild­ar­tekjur sam­bæri­legar og fyrri ár

Í fyrra námu heild­ar­tekjur ein­stak­linga á Íslandi að með­al­tali 7,1 milljón króna eða um 591 þús­und krónur á mán­uði. Mið­gildi heild­ar­tekna var aftur á móti lægra, um 5,9 millj­ónir á ári eða um 488 þús­und krónur á mán­uði. Sam­kvæmt til­kynn­ingu Hag­stof­unnar hafa með­al­tekjur hækkað árlega um rúm­lega 3 pró­sent en verð­lags­leiðiréttar heild­ar­tekjur eru nær óbreyttar á tíma­bil­inu.

Meðaltal og miðgildi heildartekna frá aldamótum. Mynd: Hagstofa Íslands

Tekjur þeirra sem yngstir eru voru lægstar árið 2020, en sér­stak­lega er vakin athygli á því í til­kynn­ingu Hag­stof­unnar að margir í yngstu ald­urs­hóp­unum búa enn í for­eldra­hús­um. Að með­al­tali voru heild­ar­tekjur ein­stak­linga á aldr­inum 16 til 19 ára um 117 þús­und krónur á mán­uði. Í næsta ald­urs­hópi fyrir ofan, hjá 20 til 24 voru heild­ar­tekjur á mán­uði um 318 þús­und krónur að með­al­tali á árinu 2020. Hæstu heild­ar­tekj­urnar höfðu ein­stak­lingar í ald­urs­hópnum 45 til 49 ára, tekjur þeirra námu um 786 þús­und krónum að með­al­tali í fyrra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent