Samstæða Reykjavíkur skilaði tæplega tólf milljarða hagnaði á fyrri hluta árs

Sá hluti rekstrar höfuðborgarinnar sem er fjármagnaður með skatttekjum skilaði 7,3 milljarða króna tapi á fyrri hluta árs. Matsbreytingar á húsnæði Félagsbústaða, hærra álverð og tekjufærsla gengismunar hjá Orkuveitunni skilaði hins vegar miklum hagnaði.

Ráðhús Reykjavíkur
Auglýsing

Sá hluti rekstrar Reykja­vík­ur­borgar sem fjár­magn­aður er með skatt­tekj­um, svo­kall­aður A-hluti, skil­aði 7,3 millj­arða króna tapi á fyrri hluta árs­ins 2021. Það er aðeins betri nið­ur­staða en áætlun gerði ráð fyr­ir, en hún hafði reiknað með tæp­lega átta millj­arða króna tapi á tíma­bil­inu. Afkoman var því 672 millj­ónum krónum betri en stefnt hafði verið að, aðal­lega vegna þess að útsvars­tekjur voru rúm­lega 3,1 millj­arði krónum meiri en áætlun hafði gert ráð fyr­ir. Á móti voru launa­út­gjöld 2,6 millj­örðum krónum yfir fjár­heim­ild­um, að hluta til vegna aðgerða sem rekja má til kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Þetta kemur fram í árs­hluta­reikn­ingi Reykja­vík­ur­borgar sem lagður var fyrir borg­ar­ráð í dag. 

Mats­breyt­ing­ar, hærra álverð og geng­is­hagn­aður

Hinn hlut­inn í rekstri borg­ar­inn­ar, B-hlut­inn, skil­aði hins vegar miklu betri afkomu en reiknað hafði verið með, eða alls 13,1 millj­arði króna. Hann nær yfir afkomu þeirra fyr­ir­tækja sem borgin á að öllu leyti eða að hluta. Fyr­ir­tækin sem telj­­ast til B-hlut­ans eru Orku­veita Reykja­vík­­­ur, Faxa­fló­a­hafnir sf., Félags­­­bú­­staðir hf., Íþrótta- og sýn­inga­höllin hf., Mal­bik­un­­ar­­stöðin Höfði hf., Slökkvi­lið höf­uð­­borg­­ar­­­svæð­is­ins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Afl­vaka hf og Þjóð­ar­leik­vangs ehf.

Auglýsing
Fjárhagsáætlun hafði gert ráð fyrir að sá hluti rekstr­ar­ins yrði rek­inn í 5,7 millj­arða króna hagn­aði á fyrstu sex mán­uðum árs­ins en reyndin varð sú að hagn­aður af rekstri hans var 18,8 millj­arðar króna. Betri nið­ur­stöðu má einkum rekja til mats­breyt­ingu fjár­fest­inga­eigna hjá Félags­bú­stöð­um, áhrifa hækk­aðs álverðs og tekju­færslu geng­is­munar vegna styrk­ingar krón­unnar frá ára­mótum hjá Orku­veit­unn­i. 

Sam­an­lagt nam því hagn­aður A- og B-hluta Reykja­vík­ur­borgar alls 11,6 millj­örðum króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins.. Áætlun hafði gert ráð fyrir tapi upp á 2,3 millj­arða króna. Því nemur við­snún­ing­ur­inn frá áætlun að veru­leika alls 13,8 millj­örðum króna.

Eignir sam­stæð­unnar voru metnar á 745,4 millj­arða króna í lok júní síð­ast­lið­ins og hækk­uðu um 15 millj­arða króna frá ára­mót­um. Skuldir hækk­uðu að sama skapi um 11,3 millj­arða króna og stóðu í 397,1 millj­örðum króna. Eig­in­fjár­hlut­fall Reykja­vík­ur­borgar er nú 46,7 pró­sent en var 47 pró­sent í lok árs 2019.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokki