„Temprun“ veirunnar er nýja bælingin

Ríkisstjórnin hefur markað nýja stefnu um opinberar sóttvarnaráðstafanir, sem sögð er að verulegu leyti í samræmi við langtímasýn Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis, sem sett var fram fyrir skemmstu.

Ríkisstjórnin útskýrir nýja stefnu sína í opinberum sóttvarnaráðstöfunum í tilkynningu í dag.
Ríkisstjórnin útskýrir nýja stefnu sína í opinberum sóttvarnaráðstöfunum í tilkynningu í dag.
Auglýsing

Stjórn­völd ákváðu í dag að halda áfram opin­berum sótt­varna­ráð­stöf­unum til þess að hefta útbreiðslu kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Litlar breyt­ingar verða gerðar fram til 17. sept­em­ber, þrátt fyrir að opnað sé á að allt að 500 manns geti komið saman á við­burðum ef þeir fram­vísi nið­ur­stöðum hrað­prófs við inn­göngu og met­ers­reglan á sitj­andi við­burðum verði afnum­in, auk ann­arra mildra til­slak­ana.

Í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins er sú hug­mynda­fræði sem rík­is­stjórnin hefur ákveðið að beita á næst­unni útskýrð, en stjórnin seg­ist vera að fara eftir „að­ferða­fræði temprunar“ hvað útbreiðslu veirusmita varð­ar.

Hvað er temprun?

Stjórn­völd segja að „temprun“ á útbreiðslu smita virð­ist ákjós­an­leg­asta og ábyrg­asta leiðin til þess að koma sam­fé­lag­inu smám saman úr hættu­á­standi vegna COVID-19. Áður en sam­fé­lagið varð jafn bólu­sett og raunin er nú var stefnan sú að „bæla“ veiruna niður með hörðum aðgerðum og ekki leyfa smitum að dreifast um sam­fé­lag­ið.

Sam­kvæmt lýs­ingum stjórn­valda er nú stefnt að því að „við­hafa aðgerðir og ráð­staf­anir sem hægja á útbreiðslu veirunn­ar“ og segir að þessi aðferð sé „að veru­legu leyti í sam­ræmi við til­lögur sótt­varna­læknis um fram­tíð­ar­fyr­ir­komu­lag sótt­varna á Ísland­i.“

Þetta er þannig milli­vegur á milli þess að bæla niður smit með mjög hörðum aðgerðum og þess að leyfa veirusmitum að ganga óheftum yfir sam­fé­lag­ið.

Er þetta komið til að vera um lengri tíma?

Í til­kynn­ingu stjórn­valda segir að aðferða­fræði temprunar gildi í „tak­mark­aðan tíma,“ nema alvar­legar breyt­ingar verði í eðli far­ald­urs­ins, til dæmis vegna nýrra afbrigða.

„Temprun smita felur í sér að tekin eru skref í átt að frek­ari opnun en álag vegna veik­inda dreif­ist á lengra tíma­bil heldur en ef aðgerðir eru aflagðar í einu vet­fang­i,“ segir í til­kynn­ingu stjórn­valda.

Þar segir enn­fremur að á fundum rík­iss­stjórn­ar­innar að und­an­förnu með „fjöl­breyttum hópi sér­fræð­inga og hags­muna­að­ila“ hafi komið fram „rík sjón­ar­mið um mik­il­vægi þess að halda sam­fé­lag­inu gang­andi og tak­mörk­unum sem minnstum í ljósi þess að bólu­setn­ing veitir góða vernd gegn alvar­legum veik­ind­um.“

Auglýsing

Í til­kynn­ing­unni segir einnig að „aug­ljós­lega“ þurfi áfram að taka mið af stöðu far­ald­urs­ins og nýjum gögnum og upp­lýs­ingum sem fram munu koma við allar ákvarð­an­ir, en í meg­in­dráttum sé „stefnt að því að við­hafa aðgerðir sem hægja á útbreiðslu veirunnar þegar ástæða er til“.

Sam­fé­lagið þurfi þó líka „að laga sig að því að lifa með veirunni án þess að hún hafi of mikil áhrif á dag­legt líf.

Smám saman verði hægt að slaka á

Í til­kynn­ingu stjórn­valda segir að sam­hliða því að Land­spít­al­inn og heil­brigð­is­kerfið í víð­ara sam­hengi verði styrkt til þess að bregð­ast við alvar­legum veik­indum og öðrum aðgerðum sem þörf sé að grípa til, sé sýnin sú að „leið temprunar feli í sér sífellt minni tak­mark­anir eftir því sem ónæmi og mót­stöðu­þrek vex.“

„Þannig verði smám saman unnt að draga úr kröfum um sýna­töku, sótt­kví og ein­angr­un, fjölda­tak­mark­anir verði rýmkað­ar, grímunotkun verði gerð val­kvæð, áhersla aukin á ein­stak­lings­bundna smit­gát og sér­stakar tak­mark­anir á opn­un­ar­tíma veit­inga- og skemmti­staða verði afnumdar í áföng­um,“ segir í til­kynn­ingu stjórn­valda.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent