Samkeppniseftirlitið hefur lagt 80 milljóna króna sekt á Securitas fyrir brot á samkeppnislögum. Greint er frá niðurstöðunni á heimasíðu Samkeppniseftirlitsins.
Samkvæmt niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins misnotaði Securitas markaðsráðandi stöðu sína á markaði fyrir öryggisgæslu fyrir heimili og fyrirtæki. Brot Securitas fólust í því að fyrirtækið gerði sérstaka samninga við viðskiptavini sína um svokallaða Heimavörn og Firmavörn, sem fólu í sér að viðskiptavinunum var óheimilt að eiga viðskipti við aðra keppinauta Securitas í að minnsta kosti þrjú ár. Þá voru ákvæði í samningunum sem voru til þess fallin að skapa aukna tryggð viðskiptavina við Securitas.
Samkeppniseftirlitið kemst að þeirri niðurstöðu að Securitas hafi verið markaðsráðandi í öryggisgæslu fyrir heimili og fyrirtæki, og fyrirtækið hafi haft mikla yfirburði á því sviði. Þá hafi fyrirtækið verið með um 65 til 70 prósenta markaðshlutdeild á árunum 2006 til 2011, sem var tímabilið sem var til skoðunar hjá Samkeppniseftirlitinu. Að mati Samkeppniseftirlitsins höfðu áðurnefndir samningar talsverð útilokunaráhrif í för með sér, og takmörkuðu möguleika minni keppinauta á að ná til sín auknum viðskiptum eða nýrra að komast inn á markaðinn.
Í málinu hélt Securitas því fram að samningarnir feli í sér greiðsludreifingu, auk þess sem áhætta fyrirtækisins væri mikil ef ekki kæmi til áðurnefndur binditími. Í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins er ekki fallist á skýringar Securitas að öllu leyti, heldur er niðurstaðan sú að út frá rekstrarlegum forsendum geti fyrirtækið ekki réttætt svo langan binditíma.
Þá segir að endingu í frétt Samkeppniseftirlitsins: „Er það því niðurstaða Samkeppniseftirlitsins, að einkakaupasamningar Securitas með binditíma til þriggja ára auk ákvæða sem skapa aukna tryggð viðskiptavina við fyrirtækið, feli í sér misnotkun á markaðsráðandi stöðu og brot á 11. gr. samkeppnislaga. Vegna þessara brota er Securitas gert að greiða 80 milljón króna stjórnvaldssekt í ríkissjóð.“