Seðlabankaskuld breytt til að tryggja hallalaus fjárlög

fjarmalaradherrafjarlog-1-715x320.jpg
Auglýsing

Til að ná fram halla­lausum fjár­lögum í ár, 2014, og á næsta ári, 2015, var skuld rík­is­ins við Seðla­banka Íslands lækkuð um 26 millj­arða króna án þess að greiðsla hefði borist fyr­ir. Sú aðgerð gerði það að verkum að millj­arð­arnir 26 telj­ast sem arð­greiðsla í rík­is­reikn­ingi 2014 og eykur þar með tekjur rík­is­ins um þá upp­hæð. Lækkun skuld­ar­innar gerir líka það að verkum að vaxta­greiðslur rík­is­ins lækka um 8,1 millj­arð króna á árinu 2015.

Án þess­arar breyt­ingar yrðu fjár­lög­in, eins og þau voru kynnt í fjár­laga­frum­varp­inu, nei­kvæð um fjóra millj­arða króna. Þetta kemur fram í fjár­laga­frum­varpi fyrir árið 2015. Fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið stað­festi aðgerð­ina í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um mál­ið.

Arð­greiðslur hækk­uðu um 45,8 millj­arða



Í fjár­lögum árs­ins 2014 var gert ráð fyrir að tekjur rík­is­sjóðs af arði og end­ur­mati eign­ar­hluta ættu að vera 11,1 millj­arðar króna. Í fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­inn­ar, sem kynnt var í síð­ustu viku, er hins vegar birt ný áætlun fyrir árið 2014. Þar er gert ráð fyrir að arð­greiðslur á þessu ári hækki um 45,8 millj­arða króna og verði alls 56,9 millj­arðar króna.

Ástæðan fyrir þess­ari gríð­ar­legu hækkun útskýrist meðal ann­ars af því að Lands­bank­inn greiddi rík­is­sjóði 19,7 millj­arða króna í arð á árinu en búist hafði verið verið að heild­ararð­greiðsla frá við­skipta­bönk­unum sem ríkið á hlut í yrði sex millj­arðar króna. Stærsta breyt­ingin varð hins vegar sú að arð­greiðsla frá Seðla­banka Íslands fór úr tveimur millj­örðum króna í 32,5 millj­arða króna. Þar skipti mestu liður sem kall­ast end­ur­mat á skulda­bréfi rík­is­sjóðs og jók tekjur rík­is­ins um 26 millj­arða króna. Aðgerðin lækk­aði einnig skulda­hlut­fall rík­is­ins.

Auglýsing

Þessi aðgerð er útskýrð í fjár­laga­frum­varp­inu með þeim hætti að vegna áform­aðra breyt­inga á við­miðum „um eigið fé, arð­greiðslur og inn­kall­an­legt eigið fé Seðla­banka Íslands gefst svig­rúm til að lækka höf­uð­stól skulda­bréfs­ins um 26 mia.kr. í 145 mia.kr. en það hefur þau áhrif að vaxta­kostn­aður af bréf­inu verður lægri en ella hefði orð­ið, eða 8,1 mia.kr. á árinu 2015“.

Bók­halds­leg aðgerð



Kjarn­inn beindi fyr­ir­spurn til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins um málið og spurði hvort það væri réttur skiln­ingur að höf­uð­stóll skulda­bréfs­ins hefði verið lækk­aður um 26 millj­arða króna á nþess að nokkur greiðsla hefði borist. Í skrif­legu svari ráðu­neyt­is­ins seg­ir: „Hér er ann­ars vegar um að ræða skulda­bréfið sem er eign Seðla­bank­ans og hins vegar eigið fé Seðla­banka Íslands sem er skuld SÍ við rík­is­sjóð. Það sem á að ger­ast er að eigið fé Seðla­bank­ans verður lækkað um 26 mia.kr. og and­virði þess notað til að greiða inn á skulda­bréf­ið“.

Sem­sagt, eigið fé Seðla­bank­ans var lækkað um 26 millj­arða króna og það notað til að greiða niður skuld við rík­ið, sem not­aði það á móti til að greiða niður skulda­bréf við Seðla­bank­ann ,sem bók­færð var sem arð­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None