Seðlabankinn heldur stýrivöxtum óbreyttum

10016524533-0ff5c08222-z1.jpg
Auglýsing

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bank­ans óbreytt­um. Meg­in­vextir bank­ans, vextir á sjö daga bundnum inn­lán­um, verða því áfram 4,5 pró­sent. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans.

Það segir að sam­kvæmt bráða­birgða­tölum Hag­stofu Íslands hafi hag­vöxtur verið nokkuð minni á fyrstu þremur árs­fjórð­ungum síð­asta árs en spáð hafði ver­ið í nóv­em­ber­hefti pen­inga­mála. Kjarn­inn greindi frá nið­ur­stöðum Hag­stof­unnar í byrjun des­ember, en þar kom fram að hag­vöxtur á fyrstu níu mán­uðum árs­ins hafi reynst 0,5 pró­sent. Seðla­bank­inn spáði því að hag­vöxtur á Íslandi árið 2014 yrði um þrjú pró­sent.

Bank­inn gerir ráð fyrir minni hag­vexti en hann spáði



Í yfir­lýs­ingu pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans segir að vís­bend­ingar séu um að bráða­birgða­tölur Hag­stof­unnar kunni að fela í sér van­mat, en í upp­færðri spá Seðla­bank­ans sé eigi að síður gert ráð fyrir að hag­vöxtur í fyrra hafi verið minni en bank­inn spáði í nóv­em­ber, eða 2 pró­sent í stað 2,9 pró­senta. Hins vegar sé búist við meiri hag­vexti í ár en spáð var eða 4,2 pró­sentum í stað 3,5 pró­senta.

Þá kemur fram að verð­bólga hafi hjaðnað frá síð­ustu vaxta­á­kvörð­un, í des­em­ber og jan­úar hafi hún mælst aðeins 0,8 pró­sent, og útlit fyrir að verð­bólga verði undir tveimur pró­sentum fram á næsta ár, sem sé minni verð­bólga en spáð hafi verið í nóv­em­ber. Þar vegi þyngst lítil alþjóð­leg verð­bólga og stöðugt gengi íslensku krón­unnar sem vegi á móti áhrifum tölu­verðra launa­hækk­ana inn­an­lands.

Auglýsing

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans segir efna­hags­horfur að ýmsu leyti tví­sýnni en oft áður­. ­Lækkun elds­neyt­is­verðs hafi haft mikil áhrif á verð­lags­þróun bæði á Íslandi og á heims­vísu, en óvíst sé hve lang­vinn þessi þróun verði. Launa­vöxtur hafi verið tölu­verður á Íslandi, ólíkt flestum við­skipta­lönd­um, og vax­andi óróa gæti á vinnu­mark­aði sem gæti teflt í tví­sýnu stöð­ug­leik­anum sem áunn­ist hafi.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None