Segir endurheimt raunlauna leiða af sér minni hagvöxt, meiri verðbólgu og hærri stýrivexti

Ef kjarasamningar skila til baka þeim raunlaunum sem tapast hafa vegna verðbólgu telur Seðlabankinn að hagvöxtur á næsta ári verði sá minnsti síðan 2002, ef frá eru talin samdráttarárin í kjölfar bankahrunsins og kórónuveirufaraldursins.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Auglýsing

Í nýjasta riti Pen­inga­mála, sem birt var á mið­viku­dag, er sér­stök ramma­grein þar sem spáð er í hvað ger­ist ef kom­andi kjara­samn­ingar feli í sér meiri launa­hækk­anir en nú sé gert ráð fyrir í grunn­spá Seðla­bank­ans. 

Í ramma­grein­inni segir að núgild­andi kjara­samn­ing­ar, sem und­ir­rit­aðir voru í apríl 2019, hafi skilað launa­fólki því að raun­laun hafi heilt yfir hækkað um 7,2 pró­sent og kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna á mann hafi hækkað um ríf­lega 13 pró­sent frá und­ir­ritun og fram á mitt ár 2022. Raun­laun hafa hins vegar gefið eftir und­an­farið og Seðla­bank­inn telur að ætla megi að þau hafi hækkað minna en lagt var upp með við und­ir­ritun samn­ing­anna þar sem verð­bólga hefur verið langt umfram spár. „ Ummæli for­ystu­manna verka­lýðs­fé­laga und­an­farið virð­ast m.a. snúa að því að vinna upp þá hækkun raun­launa sem á vant­ar. Í ljósi þess að spenna er á vinnu­mark­aði og kjöl­festa verð­bólgu­vænt­inga hefur veikst gætu laun því hækkað nokkru meira á spá­tím­anum en núver­andi grunn­spá gerir ráð fyr­ir.“

Dregur upp svarta mynd ef end­ur­heimta eigi raun­launa­stig

Til að kanna hver áhrif þeirra launa­hækk­ana gætu orðið not­að­ist Seðla­bank­inn við hið svo­kall­aða DYNI­MO-líkan sitt og gerði þar ráð fyrir að nafn­laun hækki um lið­lega fimm pró­sentu­stig meira á næsta ári „í þeirri við­leitni að end­ur­heimta sam­bæri­legt raun­launa­stig og var í upp­hafi árs­ins, áður en verð­bólgan tók að grafa undan kaup­mætt­i.“

Auglýsing
Því er  gert ráð fyrir að laun hækki þá um ell­efu pró­sent á næsta ári í stað þeirra sex pró­senta sem grunn­spá Seðla­bank­ans reiknar með og sam­tals um 24 pró­sent á næstu þremur árum í stað 18 pró­sent. 

Þetta telur Seðla­bank­inn að muni hækka jað­ar­kostnað fyr­ir­tækja tölu­vert meira en í grunn­spánni sem leiði til þess að þau bregð­ast „bæði við með því að ganga á hagn­að­ar­hlut­deild sína og hag­ræða í rekstri, m.a. með því að stytta vinnu­tíma starfs­fólks eða með upp­sögn­um. Það dugar þó ekki til sam­kvæmt lík­an­inu og því bregð­ast þau einnig við með því að hækka afurða­verð sitt.“ 

Afleið­ingin yrði meðal ann­ars hæg­ari vöxtur á einka­neyslu, hag­vöxtur dregst sam­an, verð­bólga verður meiri og stýri­vextir hærri. 

Sá minnsti frá 2002 utan ham­fara­tíma

Raunar segir Seðla­bank­inn að hag­vöxtur á næsta ári, sem yrði 1,75 pró­sentu­stigum minni á árinu 2023, yrði sá minnsti hér­lendis síðan 2002 ef frá eru talin sam­drátt­ar­árin í kjöl­far banka­hruns­ins og kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. 

Seðla­bank­inn segir að þrátt fyrir lak­ari hag­vaxt­ar­horfur yrði verð­bólga samt sem áður meiri á spá­tím­an­um, sem nær út árið 2025, en sam­kvæmt fyr­ir­liggj­andi grunn­spá. Til að tryggja að verð­bólgan verði í sam­ræmi við verð­bólgu­mark­mið Seðla­bank­ans til lengri tíma þyrfti auk þess að hækka stýri­vexti enn frekar, en þeir hafa nú þegar verið hækk­aðir tíu sinnum í röð og standa í sex pró­sentu­stig­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent