Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar segir ríkisstjórnina þverklofna í stærsta hagsmunamáli íslensku þjóðarinnar, sem sé losun á fjármagnshöftum og uppgjör á þrotabúum Glitnis og Kaupþings. „Formenn stjórnarflokkanna tala, annar í austur en hinn í vestur þegar kemur að afnámi hafta og uppgjöri föllnu bankanna.“ Þetta kom fram í umræðum um störf þingsins fyrr í dag.
Í ræðu sinni rifjaði Helgi upp ýmis ummæli Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra annars vegar og Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, sem fallið hafa um þessi mál. „Forsætisráðherra sagði í byrjun mánaðarins að skref yrðu stigin nú þegar í janúar, sem er svo gott sem búinn og engin skref hafa verið stigin. Fjármálaráðherra segir hins vegar að skref verði stigin á fyrri hluta þessa árs. Forsætisráðherra lýsir því yfir að heimilin þurfi að vera skaðlaus af þessum aðgerðum. Fjármálaráðherra lýsti því yfir í morgun að við yrðum að taka stökkið í góðri trú.
Helgi Hjörvar segir forystumenn ríkisstjórnarinnar tali ", annar í austur en hinn í vestur þegar kemur að afnámi hafta og uppgjöri föllnu bankanna.“
Forsætisráðherra lýsir því yfir að skapast verði verulegt svigrúm í samningum við kröfuhafa. Fjármálaráðherra lýsti því yfir hér í gær að málið snerist ekki um að afla tekna heldur að varðveita stöðugleika. Forsætisráðherra segir að þetta sé mikill pólitískur slagur við erlenda kröfuhafa um að ná af þeim 800 milljörðum krónum. Fjármálaráðherra lýsir því yfir að þetta sé fyrst og fremst vinna sérfræðinga. Því hefur verið lýst hér yfir að ekki megi ganga til samninga við kröfuhafana. Svo líða nokkrir mánuðir og þá er sendinefnd af hálfu ríkisstjórnarinnar komin í samningaviðræður við stjórnir slitabúa föllnu bankanna,“ segir Helgi.
Helgi segir að gefnar hefði verið út yfirlýsingar um þessi mál á alþjóðlegum fjármálamörkuðum um að ríkisstjórnin myndi í tilteknum mánuði gefa út nýja áætlun um afnám hafta. Nú sé liðið eitt og hálft ár síðan og ekkert bóli á neinni áætlun. Helgi sagði að enn væri í gildi áætlun ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur. „Við þurfum hér í þinginu, stjórn og stjórnarandstaða, að standa fast saman í þessu stærsta hagsmunamáli þjóðarinnar, en það er auðvitað alger óhæfa að formenn stjórnarflokkanna geti ekki einu sinni staðið hvor með öðrum og haft í meginatriðum svipaðar skoðanir í stærsta hagsmunamáli íslensku þjóðarinnar.“