Ögmundur Jónasson, fyrrverandi innanríkisráðherra, sakar Jón Bjartmarz yfirlögregluþjón hjá Ríkislögreglustjóra um ósannindi í umræðunni um vopnavæðingu lögreglunnar. Ásakanirnar koma fram í pistli sem Ögmundur birti á heimasíðu sinni nú rétt í þessu.
Hann segir Jón Bjartmarz hafa gegnið fram fyrir skjöldu, fyrir hönd ráðherra og ríkislögreglustjóra, í fjölmiðlum til að réttlæta ákvarðanir um að koma hríðskotabyssum fyrir í almennum lögreglubílum. Þá hafnar Ögmundur ummælum Jóns um að engin eðlisbreyting á vopnaburði lögreglumanna eigi sér stað með þessu, og í raun sé einvörðungu verið að framfylgja því sem komið hafi fram í skýrslu sem gerð hafi verið í ráðherratíð hans.
"Það sem Jón Bjartmarz hefur kallað ,,skýrslu Ögmundar" er samantekt á stöðu lögreglunnar sem byggð er á mati lögreglunnar sjálfrar n.t.t. embættis ríkislögreglustjóra. Þá hefur hann vísað í skýrslu þverpólitískrar nefndar sem sett var á laggirnar til að meta stöðu lögreglunnar, fjárþörf hennar og mannaflaþörf eftir niðurskurðinn af völdum efnahagshrunsins en þessi skýrsla kom til umræðu á Alþingi í mars 2013."
Ögmundur segir að hvorki í umræðu né neinum gögnum eða ábendingum sem komu fram í hans ráðherratíð sé að finna stafkrók sem gæti gefið formælendum vopnavæðingar lögreglunnar minnsta tilefni til að tala á þann veg sem Jón Bjartmarz hafi leyft sér að gera.
Þá segir Ögmundur: "Yfirlögregluþjóninum tókst að nefna nafn mitt ófáum sinnum í Kastljósþætti sjónvarpsins og hefur verið óþreytandi í öðrum fjölmiðlum að bendla nafn mitt sem fyrrverandi innanríkisráðherra við málið og gefa þar með í skyn að það sé á mína ábyrgð. Með almennri vopnavæðingu sé lögreglan að bregðast við gagnrýni sem ég hafi sett fram! Málfutningur embættis ríkislögreglustjóra byggir hér á útúrsnúningi og staðlausum stöfum. Ég ítreka að þessi kaup og eðlisbreyting á búnaði almennu lögreglunnar er ekki með mínu samþykki. Dylgjur og ósannindamálflutningur af þessu tagi veikir því miður trúverðugleika lögreglunnar."
Þá segir Ögmundur að innan ráðuneytis hans og lögreglunnar hafi verið þekkt viðhorf að hann sé andsnúinn því að almennir lögreglumenn beri vopn. Þar hafi sérsveit lögreglunnar verið undanskilin, auk þess sem hann hafi talið eðlilegt að hafa skotvopn í lögreglubílum í dreifðum byggðum komi til þess að aflífa þurfi skepnur svo dæmi sé tekið. Í þessu máli sé hins vegar um að ræða almenna vopnavæðingu íslensku lögreglunnar.